Messan ræðir leik Manchester United: Ég elska að sjá svona hluti Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. nóvember 2017 11:00
Romelu Lukaku, framherji Manchester United, var í sviðsljósinu í leik Manchester United og Brighton í ensku úrvalsdeildinni um helgina og strákarnir í Messunni fjölluðu um Belgann og þátttöku hans í sigri síns liðs. Ríkharð Óskar Guðnason sá um Messuna í gær og gestir hans að þessu sinni voru þeir Hjörvar Hafliðason og Bjarni Guðjónsson. Romelu Lukaku vann hornspyrnuna sem skilaði sigurmarki Manchester United en þeir Hjörvar og Bjarni voru ekki sammála um hvort að hann hefði átt að fá hana. „Ég held að þetta hafi aldrei verið hornspyrna,“ sagði Hjörvar. „Þetta er bara hundrað prósent horn,“ sagði Bjarni en Ríkharð tók undir með Hjörvari og þeir skoðuðu síðan atvikið betur. „Ég hrindi í hann og hann viðurkenndi það að hann hefði fengið boltann í sig,“ sagði Bjarni síðan í léttum tón. Þeir félagar ræddu líka af hverju Ashley Young fékk ekki skráð á sig sigurmarkið sem og umdeilt atvik með Lukaku þar sem hann reynir að sparka í mótherja. Lukaku fékk líka hrós fyrir vinnusemina undir lok leiksins. „Lukaku bjó til aðdraganda marksins úr ekki neinu. Svo er leikurinn að fjara út hérna og Lukaku á lélega snertingu og virðist vera alveg búinn,“ segir Bjarni en bendir síðan á vinnusemi Belgans. „Sjáið stóra karlinn. Ég elska að sjá svona hluti,“ sagði Bjarni en þá má sjá allt innslagið í spilaranum hér fyrir ofan.
Enski boltinn Mest lesið Pabbinn fékk tattú á punginn Sport Ætlar sér að vinna heimsleikana í Crossfit Sport Fáránlegt hneyksli ofurhlaupara: Breyttu Wikipedia-síðum Sport Átján ára hjólreiðakona í lífshættu Sport Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Enski boltinn Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Körfubolti Bestu guttarnir í Bestu deild karla Íslenski boltinn Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Sakar andstæðing um að stela þjálfaranum sínum Sport Fleiri fréttir Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Stefán fær Arsenal í heimsókn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Sjá meira