Innlent

Baldur á leið til Stykkishólms eftir að hafa beðið af sér óveður

Gissur Sigurðsson skrifar
Baldur er nú á leið til Stykkishólms.
Baldur er nú á leið til Stykkishólms. vísir/gva
Breiðafjarðarferjan Baldur er nú á leið frá Brjánslæk til Stykkishólms eftir að hafa orðið að bíða af sér óveður og mikla ölduhæð síðan í gærkvöldi. Ölduhæðin var komin upp í sjö metra en undir morgun fór hún ört lækkandi og var komin niður í fimm metra þegar skipið hélt af stað klukkan hálf fimm.

Siglingin sækist vel, að sögn stýrimanns um borð. Annars voru 18 smábátar komnir á sjó klukkan sex í morgun, en mun fara fjölgandi í dag jafn óðum og veður fer að lægja og ölduhæð að minnka.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×