Benedikt var spurður út í tilskipun Donalds Trump Bandaríkjaforseta sem kveður á um að ríkisborgurum sjö þjóða verði meinuð innganga í Bandaríkin næstu þrjá mánuðina. Þjóðirnar sjö eru Íran, Írak, Sýrland, Sómalía, Jemen, Súdan og Líbía.
„Að sjá hvað er að gerast núna þar sem menn eru að loka landinu, bæði með því að hleypa fólki ekki inn, með því að ætla að reisa múra, með því að ætla að loka fyrir innflutning. Þetta er skelfileg þróun og afar hættuleg. Sem betur fer og ég er hreykinn af því og stoltur að vera Íslendingur þar sem við höfnuðum þessum popúlísku flokkum,“ sagði Benedikt.
Benedikt sagði að nú þurfi að íhuga það vel hvernig hægt sé að bregðast við. „Á maður að hætta að umgangast Bandaríkjamenn? Þetta er þó vinaþjóð okkar. Þetta er þjóð sem var leiðandi lýðræðisþjóð og hefur verið það og nú reynir auðvitað á stofnanir Bandaríkjanna. Hvað ætla menn að gera núna? [...] Sættum við okkur bara við þetta? Höldum við okkur bara til hlés og vonum það besta? Getur réttarkerfið og pólitíska kerfið sætt sig við þetta? Trump er ekki einvaldur þó hann láti eins og hann sé það.“
Þá segir hann á Facebook að Íslendingar hljóti að styðja frelsið og lýsa vanþóknun á aðgerðum forsetans.
„Það er hræðilegt til þess að hugsa hvernig komið er fyrir Bandaríkjunum, þessari vöggu lýðræðis og frelsis í heiminum þegar fordómar ráða nú ríkjum; fáfræði og fljótræði stýra för og réttindi eru fótum troðin. Nú reynir á innviði réttarríkisins, en við getum ekki horf þegjandi á þegar forystuþjóð vestrænna gilda er breytt í andhverfu sína. Íslendingar hljóta allir að styðja frelsið og lýsa vanþóknun á stefnu og aðgerðum Trumps.“