Einn eftirsóttasti leikmaður heims gæti hafnað United og Arsenal fyrir PSG Tómas Þór Þórðarson skrifar 28. mars 2017 18:00 Tiemoue Bakayoko í leik með Monaco. vísir/gettyu
Tiemoue Bakayoko, 22 ára gamall miðjumaður Monaco í Frakklandi, er einn eftirsóttasti ungi leikmaður heims um þessar mundir en hann hefur spilað frábærlega fyrir Monaco sem er í toppbaráttunni í frönsku 1. deildinni og er komið í átta liða úrslit Meistaradeildarinnar. Manchester United og Arsenal hafa undanfarnar vikur og mánuði verið sögð gríðarlega áhugasöm um að fá Bakayoko til liðs við sig næsta sumar en hann er spenntari fyrir franska stórliðinu Paris Saint-Germain. Ólíklegt þykir að Monaco haldi honum í sumar vegna áhuga stórliða en ef PSG kemur bankandi á dyrnar þykir ansi líklegt að hann slái til og flytji aftur til höfuðborgarinnar en þaðan er hann ættaður. „Þegar Tiemoue var ungur vildi hann alltaf spila fyrir PSG. Það var draumur hans,“ segir Soualio Bakayoko, bróðir Tiemoue, sem spilar með Paris FC í frönsku 3. deildinni. „Þegar ég sagði við hann í æsku að einn daginn ætti hann eftir að spila fyrir PSG sagði hann alltaf að ef það byðist myndi hann slá til. Hann var samt þolinmóður en ef hann getur farið til PSG mun hann fara þangað,“ segir Soualio Bakayoko í viðtali við RMC.
Enski boltinn Mest lesið Heimir skildi stórt nafn eftir heima og Írar fagna Fótbolti Uppgjörið: Omonia - Víkingur 4-0 | Seig á ógæfuhliðina í seinni hálfleik Fótbolti Guðjohnsen snýr aftur á Brúna: „Sérstakt fyrir mig og pabba“ Fótbolti Bruno sá aftur rautt en Maguire bjargaði stigi í uppbótartíma Fótbolti Í beinni: Tindastóll - KR | KR-ingar mæta aftur til leiks Körfubolti Maradona verður grafinn upp Fótbolti „Slúðrað og talað um mig í öllum hornum“ Handbolti Í beinni: FH - Valur | Stórleikur á Hlíðarenda Handbolti Frumsýna nýja Evróputreyju Fótbolti Finnur til með Ten Hag og býður honum í glas Fótbolti Fleiri fréttir Valinn í landsliðið í fyrsta sinn í sjö ár Holdafarsummæli Guardiola sem myllusteinn um háls Phillips Henry hélt að Saka yrði ekki það góður „Hann er klárlega magnaður þjálfari“ Leikmaður City handtekinn fyrir að stela síma Sakar leikmenn United um leti á æfingum Bann og sekt fyrir að kalla fjórða dómara „litla helvítis kuntu“ Rauða spjaldið hans Bruno dregið til baka Scholes brjálaður: De Ligt geti ekkert og ten Hag þjálfi liðið varla Fyrirliðinn segir Íslendingaliðið of gott fyrir C-deildina Heimamenn kláruðu dæmið í fyrri hálfleik Dómarinn fyrrverandi segir Bruno hafa átt að fá gult Leikmenn láta í sér heyra: „Við erum í hættu“ Liverpool ekki meistaraefni: „Eru langt á eftir City og Arsenal“ Spilar ekki í deildinni fyrr en í nóvember Ten Hag verði ekki rekinn Leikurinn ekki stöðvaður þó svo maður hafi dáið í stúkunni „Viðbjóðsleg“ frammistaða sem lætur stjóra missa starfið Dagný fékk gult þegar Hamrarnir nældu í sitt fyrsta stig Delap bjargaði stigi fyrir nýliðina Tottenham lék tíu United-menn grátt Upphafið að endinum hjá Ten Hag? Gerði grín að Konaté sem vildi verða maður leiksins Willum Þór skoraði í endurkomu sigri Birmingham Einstakt afrek Brentford dugði skammt en Everton vann loksins Arsenal skaut Refina í blálokin Palmer skoraði fernu í fyrri hálfleik Liverpool á toppnum „Við tökum stiginu“ Vandræði Man City án Rodri halda áfram Sjá meira