Eigendur Liverpool gefa grænt ljós á að sækja Brassana með einkaþotu Tómas Þór Þórðarson skrifar 28. mars 2017 13:30 Brassarnir koma með fyrstu vél. vísir/getty
Liverpool tekur engar áhættur með undirbúninginn fyrir stórleikinn á móti Everton um helgina en enska úrvalsdeildin fer af stað aftur með látum þegar Bítlaborgarslagurinn verður flautaður á klukkan 12.30 á laugardaginn. Liverpool þarf á sigri að halda í harðri baráttu um Meistaradeildarsæti en liðið er í fjórða sæti með 56 stig, fjórum stigum meira en Manchester United sem á tvo leiki til góða. Til að tryggja eins góðan undirbúning Brasilíumannanna tveggja Phillipe Coutinho og Roberto Firmino og mögulegt er verða þeir sóttir á einkaþotu til Sau Paulo þar sem brasilíska landsliðið mætir Paragvæ í leik í undankeppni HM 2018 aðra nótt. Jürgen Klopp vill auðvitað að framherjarnir tveir sem eru samtals búnir að skora fimmtán mörk og gefa tólf stoðsendingar í deildinni verði komnir aftur til Liverpool sem allra fyrst og fái góða hvíld fyrir leikinn. Fenway Sports Group, eigendur Liverpool, eru búnir að gefa grænt ljós á að sækja Brassana tvo sem eiga leik klukkan korter í tvö eftir miðnætti aðfaranótt fimmtudags. Þeir fara beint upp í vél eftir leik og ná því tveimur dögum í Liverpool áður en kemur að leiknum mikilvæga á móti Everton. Liverpool hefur áður leigt einkaþotu í samstarfi við önnur félög eins og Paris Saint-Germain og Manchester City til að fljúga Brasilíumönnum heim úr landsliðsverkefnum en að þessu sinni sjá þeir um þetta sjálfir. Liverpool flaug Sadio Mané einnig heim með einkaþotu eftir þátttöku hans í Afríkukeppninni í janúar.
Enski boltinn Mest lesið Heimir skildi stórt nafn eftir heima og Írar fagna Fótbolti Uppgjörið: Omonia - Víkingur 4-0 | Seig á ógæfuhliðina í seinni hálfleik Fótbolti Guðjohnsen snýr aftur á Brúna: „Sérstakt fyrir mig og pabba“ Fótbolti Bruno sá aftur rautt en Maguire bjargaði stigi í uppbótartíma Fótbolti Í beinni: Tindastóll - KR | KR-ingar mæta aftur til leiks Körfubolti Maradona verður grafinn upp Fótbolti „Slúðrað og talað um mig í öllum hornum“ Handbolti Í beinni: FH - Valur | Stórleikur á Hlíðarenda Handbolti Frumsýna nýja Evróputreyju Fótbolti Finnur til með Ten Hag og býður honum í glas Fótbolti Fleiri fréttir Valinn í landsliðið í fyrsta sinn í sjö ár Holdafarsummæli Guardiola sem myllusteinn um háls Phillips Henry hélt að Saka yrði ekki það góður „Hann er klárlega magnaður þjálfari“ Leikmaður City handtekinn fyrir að stela síma Sakar leikmenn United um leti á æfingum Bann og sekt fyrir að kalla fjórða dómara „litla helvítis kuntu“ Rauða spjaldið hans Bruno dregið til baka Scholes brjálaður: De Ligt geti ekkert og ten Hag þjálfi liðið varla Fyrirliðinn segir Íslendingaliðið of gott fyrir C-deildina Heimamenn kláruðu dæmið í fyrri hálfleik Dómarinn fyrrverandi segir Bruno hafa átt að fá gult Leikmenn láta í sér heyra: „Við erum í hættu“ Liverpool ekki meistaraefni: „Eru langt á eftir City og Arsenal“ Spilar ekki í deildinni fyrr en í nóvember Ten Hag verði ekki rekinn Leikurinn ekki stöðvaður þó svo maður hafi dáið í stúkunni „Viðbjóðsleg“ frammistaða sem lætur stjóra missa starfið Dagný fékk gult þegar Hamrarnir nældu í sitt fyrsta stig Delap bjargaði stigi fyrir nýliðina Tottenham lék tíu United-menn grátt Upphafið að endinum hjá Ten Hag? Gerði grín að Konaté sem vildi verða maður leiksins Willum Þór skoraði í endurkomu sigri Birmingham Einstakt afrek Brentford dugði skammt en Everton vann loksins Arsenal skaut Refina í blálokin Palmer skoraði fernu í fyrri hálfleik Liverpool á toppnum „Við tökum stiginu“ Vandræði Man City án Rodri halda áfram Sjá meira