Tony Pulis enn án sigurs á Emirates Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 25. september 2017 20:45 Alexandre Lacazette var aðeins 94 sekúndur að skora sitt fyrsta deildarmark fyrir Arsenal. vísir/getty Arsenal vann 2-0 sigur á West Bromwich Albion í lokaleik 6. umferðar ensku úrvalsdeildarinnar í kvöld. Alexandre Lacazette skoraði bæði mörk Arsenal. Það fyrra kom á 20. mínútu eftir að aukaspyrna Alexis Sanchez var varin en Lacazette skallaði frákastið í netið. Seinna markið var úr vítaspyrnu á 67. mínútu. Allan Nyom braut klaufalega á Aaron Ramsey og Lacazette skoraði af öryggi. Tony Pulis, knattspyrnustjóri West Brom, náði því ekki í sinn fyrsta sigur á Emirates vellinum. Hann hefur nú tapað 10 leikjum í 10 heimsóknum til norður Lundúna.Gareth Barry varð í leiknum leikjahæsti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar frá upphafi.Arsenal er nú með 10 stig og skýst upp í 7. sæti deildarinnar. West Brom eru með 8 stig í 11. sætinu. Enski boltinn