Guardiola: Conte er kannski sá besti Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. apríl 2017 11:45 Antonio Conte og Pep Guardiola. Vísir/Getty
Antonio Conte, knattspyrnustjóri Chelsea, fékk hrós frá kollega sínum hjá Manchester City, Pep Guardiola, fyrir leik liðanna í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Pep Guardiola var spurður út í ítalska stjórann og þar viðurkenndi Spánverjinn að hann hafi lært mikið af liðum sem hafa spilað undir stjórn Antonio Conte. Antonio Conte og Pep Guardiola eiga það sameiginleg að vera á sínu fyrsta tímabili í enska boltanum eftir að hafa náð flottum árangri á meginlandi Evrópu. Conte fagnaði 3-1 sigri í fyrri leik liðanna og Chelsea hefur náð í ellefu fleiri stig en City. „Mín skoðun á kollega mínum Conte er að hann er frábær stjóri. Honum tókst að láta Ítala spila fallegan fótbolta, Juventus líka, í menningarheimi sem er svo varnarsinnaður,“ sagði Pep Guardiola á blaðamannafundi fyrir leikinn. BBC segir frá. „Hann er framúrskarandi stjóri. Ég læri mikið þegar ég sé lið hans spila, Juventus, Ítalíu og núna Chelsea. Ég vil gera það því þá sér maður hvað liðin vilja gera. Liðin hans stjórna mörgu í sínum leikjum,“ sagði Guardiola. En hversu góður er Conte: „Kannski er hann sá besti,“ svaraði Guardiola. Conte er að fara skila titli á fyrsta tímabili með Chelsea en Manchester City liðið hefur valdi vonbrigðum. Guardiola afsakaði árangur sinn með því að væntingarnar hafi bara verið of miklar. „Ég átti að vinna þrefalt og breyta enska fótboltanum. Væntingarnar voru mjög miklar og þess vegna var ég aldrei að fara ná þeim. Ég get ekki náð árangri á þessum tímabili,“ sagði Guardiola.Antonio Conte og Pep Guardiola.Vísir/Getty
Enski boltinn Mest lesið Hætti við að hætta og samdi við Barcelona Fótbolti Salah setti met í sigri Liverpool Fótbolti Aþena með tuttugu stiga sigur í nýliðaslagnum Fótbolti „Þetta var ekki fallegt en við tökum tvö stigin“ Körfubolti Haukar og HK sættust á stig eftir æsispennandi leik Handbolti Óvænt tap meistaranna og fimm marka fjör hjá Juventus Fótbolti Ofurvaramaðurinn með ótrúlegt mark til að tryggja Aston Villa sigur Fótbolti Schumacher sást meðal fólks í fyrsta sinn í ellefu ár Formúla 1 Þúsund Walesverjar í Dalnum og Åge kallar eftir hjálp Fótbolti Ekki ánægður með stöðu Hákons Rafns Fótbolti Fleiri fréttir „Hann er klárlega magnaður þjálfari“ Leikmaður City handtekinn fyrir að stela síma Sakar leikmenn United um leti á æfingum Bann og sekt fyrir að kalla fjórða dómara „litla helvítis kuntu“ Rauða spjaldið hans Bruno dregið til baka Scholes brjálaður: De Ligt geti ekkert og ten Hag þjálfi liðið varla Fyrirliðinn segir Íslendingaliðið of gott fyrir C-deildina Heimamenn kláruðu dæmið í fyrri hálfleik Dómarinn fyrrverandi segir Bruno hafa átt að fá gult Leikmenn láta í sér heyra: „Við erum í hættu“ Liverpool ekki meistaraefni: „Eru langt á eftir City og Arsenal“ Spilar ekki í deildinni fyrr en í nóvember Ten Hag verði ekki rekinn Leikurinn ekki stöðvaður þó svo maður hafi dáið í stúkunni „Viðbjóðsleg“ frammistaða sem lætur stjóra missa starfið Dagný fékk gult þegar Hamrarnir nældu í sitt fyrsta stig Delap bjargaði stigi fyrir nýliðina Tottenham lék tíu United-menn grátt Upphafið að endinum hjá Ten Hag? Gerði grín að Konaté sem vildi verða maður leiksins Willum Þór skoraði í endurkomu sigri Birmingham Einstakt afrek Brentford dugði skammt en Everton vann loksins Arsenal skaut Refina í blálokin Palmer skoraði fernu í fyrri hálfleik Liverpool á toppnum „Við tökum stiginu“ Vandræði Man City án Rodri halda áfram Stuðningsmaður safnað milljónum eftir að völlur félagsins skemmdist Markvarslan Alisson í blóð borin Efast um dugnað og hugarfar Rashford Sjá meira