Skytturnar fóru á kostum í seinni hálfleik Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 29. nóvember 2017 21:30 Alexis Sánchez og Alexandre Lacazette skoruðu báðir í kvöld. Vísir/getty Arsenal vann sinn þriðja leik í röð þegar liðið rúllaði yfir Huddersfield, 5-0, í 14. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í kvöld. Leikurinn var aðeins þriggja mínútna gamall þegar Alexandre Lacazette kom Arsenal yfir. Lacazette fór af velli í hálfleik og í hans stað kom Olivier Giroud. Hann kom Arsenal í 2-0 á 68. mínútu og aðeins mínútu síðar skoraði Alexis Sánchez svo þriðja mark heimamanna. Mesut Özil lagði upp annað og þriðja mark Arsenal og skoraði sjálfur það fjórða á 72. mínútu. Þrjú mörk hjá Skyttunum á fjórum mínútum. Giroud skoraði svo fimmta markið þremur mínútum fyrir leikslok. Lokatölur 5-0, Arsenal í vil. Enski boltinn
Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 2-1 | Draumaúrslitaleikurinn verður að veruleika Íslenski boltinn
Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 2-1 | Draumaúrslitaleikurinn verður að veruleika Íslenski boltinn