Erlent

Réðust inn í fangelsi og frelsuðu dæmda hryðjuverkamenn

Atli Ísleifsson skrifar
Frá höfuðborginni Manama.
Frá höfuðborginni Manama. Vísir/Getty
Hópur manna réðst inn í fangelsi í Barein í nótt og frelsuðu menn sem dæmdir hafa verið fyrir hryðjuverk. BBC greinir frá þessu.

Í yfirlýsingu frá innanríkisráðuneyti landsins segir að fanganna sé nú leitað, en ekki fæst gefið upp hve margir sluppu.

Mennirnir sem réðust inn í fangelsi drápu einn lögreglumann.

Fangelsið sem um ræðir nefnist Jau og er að finna á austurströnd eyjarinnar, suður af höfuðborginni Manama.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×