DACA-áætlunin svokallaða felur í sér frest á aðgerðum við komu ungra innflytjenda, sem koma ólöglega til Bandaríkjanna, og veitir þeim tímabundið dvalarleyfi í landinu. Áætlunin kemur í veg fyrir brottflutning fjölmargra ungra innflytjenda og gerir þeim kleift að fá vinnu- og námsleyfi í Bandaríkjunum, að því er fram kemur í frétt BBC.
Trump hefur lýst því yfir að hann hyggist afnema DACA-áætlunina en talsmenn Hvíta hússins segja hann munu tilkynna um ákvörðun sína á þriðjudag.
Um að ræða krakka sem þekkja ekki annað heimili
Paul Ryan, sitjandi forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings og flokksbróðir Trumps, hvatti í dag Bandaríkjaforseta til að „vinna í“ málinu. Þá sagði hann að „samræður“ hefðu átt sér stað „við Hvíta húsið“ og að Trump væri einnig í hópi þeirra sem vildu leita „mannúðlegrar lausnar við vandamálinu.“

Með ummælum sínum skipar Ryan sér í fámennan hóp repúblikana sem hafa lýst yfir andstöðu sinni á því að afnema DACA-áætlunina. Fyrirrennari Trumps í embætti, Barack Obama, kom áætluninni á fót árið 2012.
Afstaða forsetans til ólöglegra innflytjenda ljós
Trump hefur ætíð verið staðfastur í afstöðu sinni gegn innflytjendum. Í kosningabaráttunni til embættis Bandaríkjaforseta í fyrra var kosningaloforð hans um „múrinn“ svokallaða, sem byggja á við landamæri Bandaríkjanna og Mexíkó, mjög áberandi. Múrinn á meðal annars að stemma stigu við straumi mexíkóskra innflytjenda til Bandaríkjanna.
DACA-áætlunin hefur hingað til forðað um 750 þúsund ungum innflytjendum frá brottrekstri úr Bandaríkjunum. Þeir sem njóta verndar áætlunarinnar þurfa meðal annarra skilyrða að vera undir þrítugu, vera í skóla eða nýútskrifaðir og framvísa hreinu sakavottorði.