Sólveig Anspach vann til verðlauna á frönsku Cesar-verðlaununum Anton Egilsson skrifar 25. febrúar 2017 12:10 Sólveig Anspach hlaut verðlaun fyrir besta handrit á Cesar verðlaununum í Frakklandi. Vísir
Kvikmyndaleikstjórinn Sólveig Anspach hlaut í gær hin frönsku Cesar-verðlaun fyrir besta handrit. Verðlaunin hlaut hún fyrir mynd sína L’Effet Aquatique en það var síðasta kvikmyndin sem Sólveig gerði á ferli sínum. Sólveig lést í ágúst árið 2015, 54 ára að aldri. Sólveig deildi verðlaununum með Jean-Luc Gage en þau bæði leikstýrðu og skrifuðu handrit kvikmyndarinnar í sameiningu. Cesar verðlaunin eru æðstu kvikmyndaverðlaun Frakklands. Sólveig fæddist í Vestmannaeyjum þann 8. desember 1960. Hún ólst upp í útlöndum og stundaði háskólanám í heimspeki og klínískri sálfræði í París. Sólveig útskrifaðist svo frá kvikmyndaskólanum FEMIS í París árið 1990. Sólveig fékk íslenskan ríkisborgararétt árið 2006. Hún sérhæfði sig í heimildamyndagerð framan af ferlinum en sneri sér svo í auknum mæli að leiknum myndum. Meðal mynda hennar eru „Haut les cæurs“, Nakin Lulu og Stormviðri sem var valin til þátttöku á kvikmyndahátíðinni í Cannes árið 2003.
Mest lesið Fylgdu eftir ábendingum um aðkomu undirheimanna Innlent Ekki í belti og undir áhrifum þegar hann lést Innlent Skipti öllu máli að telja drykkina Innlent Holan alls ekki eina slysagildran Innlent Uppruni stjarnanna óþekktur: „Hver andskotinn hefur verið að setja þetta inn?“ Innlent Fjórtán ára ráðinn til að hefna fyrir morðið á fimmtán ára Erlent Hætta að sekta fyrir notkun nagladekkja Innlent Skaut hundinn sjálfur og fékk háa sekt Innlent Athafnamaðurinn Þráinn Hafstein Kristjánsson látinn Innlent Ræstu út mannskap til að kanna frágang fleiri brunna Innlent Fleiri fréttir Áfram lokuð þar sem viðgerðirnar undu upp á sig En, stefnirðu ekkert lengra en að verða kennari? Niðurstaða um Ölfusárbrú væntanleg í þessari viku Skaut hundinn sjálfur og fékk háa sekt Hætta að sekta fyrir notkun nagladekkja Svandís ræðir við hina formennina og ár af átökum fyrir botni Miðjarðarhafs Fylgdu eftir ábendingum um aðkomu undirheimanna Ræstu út mannskap til að kanna frágang fleiri brunna Afgerandi meirihluti með málstað Palestínumanna Ekki í belti og undir áhrifum þegar hann lést Skiptar skoðanir um umtalaða bókun við EES-samninginn Augljóst að ríkisstjórnarsamstarfið sé að nálgast leiðarlok Holan alls ekki eina slysagildran Skipti öllu máli að telja drykkina Segir ráðherra neita að afhenda gögn um bókun 35 Tveir handteknir í tengslum við slagsmál Athafnamaðurinn Þráinn Hafstein Kristjánsson látinn Uppruni stjarnanna óþekktur: „Hver andskotinn hefur verið að setja þetta inn?“ Nýtt eftirlitskerfi á ytri landamærum Schengen-svæðisins Öflugur skjálfti í Bárðarbunguöskju „Hann hverfur ofan í jörðina“ Heppni að ekki fór verr þegar tveggja ára drengur féll niður nokkra metra Risaþotan flaug aftur yfir Reykjavíkursvæðið „Þetta er ekki endanlegt frumvarp“ Samþykktu ályktun og stefna að kosningum í vor Segir rangt að þau hafi reynt að stöðva lögreglubíl í forgangsakstri Nóg af heitu vatni á Selfossi Glerbrot í lauginni „Kveður við nýjan tón í samstarfinu sem er efnislega lokið“ Stjónmálafræðingur segir kosningar nær en marga gruni Sjá meira