Lífið

Íslenska Poldark-stjarnan Heiða Reed trúlofuð

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Heiða fer með hlutverk Elizabeth Poldark í samnefndum þáttum.
Heiða fer með hlutverk Elizabeth Poldark í samnefndum þáttum. Vísir/Getty
Leikkonan Heiða Rún Sigurðardóttir, sem á alþjóðavísu er þekkt undir nafninu Heida Reed, er trúlofuð kærasta sínum til eins árs, Sam Ritzenberg.

Heiða, sem fer með eitt aðalhlutverka þáttaraðarinnar Poldark, tilkynnti um trúlofunina á Instagram-síðu sinni á sunnudag. Hún deildi mynd af Ritzenberg, sem snýr baki í myndavélina, og skrifaði við hana: „Þetta er unnusti minn. Ég sagði honum að hann mætti kalla mig Beyoncé.“

Þar vísar Heiða, sem fagnaði nýlega 29 ára afmæli sínu, líklega í hið ódauðlega textabrot úr laginu Single Ladies, sem téð Beyoncé syngur: „If you liked it, then you should have put a ring on it.“ Textabrotið ber með sér vinsamleg tilmæli um að ef kærastanum líki kærastan – þá skuli hann reiða fram trúlofunarhringinn.

Heiða fer með hlutverk Elizabeth Poldark í samnefndum þáttum en sýningar á þeim hófust árið 2015. Hún hefur verið búsett í London í nokkur ár vegna starfs síns en eyðir nú æ meiri tíma í Los Angeles, þar sem unnustinn er til heimilis.

 
That's my fiancé. I told him he could call me Beyoncé.

A post shared by Heida Reed (@heida.reed) on Jul 8, 2017 at 11:02am PDT

Hér fyrir neðan má síðan sjá aðra mynd af skötuhjúunum af Instagram-reikningi Heiðu en hún er tekin er í San Francisco.

 
San Francisco

A post shared by Heida Reed (@heida.reed) on Jul 11, 2017 at 3:14pm PDT


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.