Innlent

Fimmtíu björgunarsveitamenn leituðu að villtum göngugarpi

Erna Agnes Sigurgeirsdóttir skrifar
Björgunarsveitir frá Hellu, Hvolsvelli og úr Árnessýslu voru boðaðar út um hálf fimm leitið í dag vegna göngumanns sem var villtur. Göngumaðurinn var einsamall og lagði af stað frá skálanum Kletti í Þjórsárdal. Maðurinn náði í félaga sína með skilaboðum og tilkynnti þeim að hann væri villtur.

Björgunarsveitarmenn á svæðinu náðu sambandi við manninn og lýsti hann aðstæðum. Leitarsvæðið var stórt þar sem maðurinn hafði gengið í dágóðan tíma áður en hann bað um aðstoð. Um það bil 50 manns tóku þátt í leitinni. Maðurinn fannst að lokum nú um kvöldmatarleitið og var farið með hann aftur í skálann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×