Lífið

Falleg íslensk heimili: Líttu inn í DAS-húsið fræga í Garðabæ

Stefán Árni Pálsson skrifar
Skemmtilegt heimili.
Skemmtilegt heimili.
Nýr íslenskur þáttur hóf göngu sína á Stöð 2 á sunnudagskvöldið og heitir hann Falleg íslensk heimili.

Þar fá sérfræðingarnir Gulla Jónsdóttir, arkitekt og hönnuður, Helgi Ómarsson, ljósmyndari og stílisti og Þóra Margrét Baldvinsdóttir hönnunarráðgjafi það skemmtilega verkefni að skoða falleg íslensk heimili.

Markmiðið er að ná fram því sem fallegt er og gleður augað. Sitt sýnist hverjum en svo mikið er víst að það er alltaf fróðlegt að fá umfjöllun um mismunandi arkitektúr, hverfi og hugmyndir manna um híbýli. Síðast en ekki síst er einfaldlega gaman að sjá hvernig aðrir hafa hreiðrað um sig.

Þrjú heimili eru heimsótt í hverjum þætti og fá sérfræðingarnir aldrei að hitta þá sem búa í eigninni.

Í fyrsta þættinum var farið í heimsókn í Lindarflöt í Garðabæ en það hús er þekkt sem DAS húsið en það var teiknað 1965 sem vinningur í happdrætti DAS.

Arkitektanir fengu frjálsar hendur um mótun húss og lóðar. Það er einstakt fyrir margar sakir en sérstaklega fyrir gríðarlega fallega nálægð við náttúruna fyrir aftan húsið.

Hér að neðan má sjá skemmtilegt brot úr þættinum en Vísir mun greina ítarlega frá þáttunum Falleg íslensk heimili.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.