Lífið

Með lappirnar í Langá og Laxá og lítur yfir Siglufjörð

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
"Við vorum í dentíð með ána á leigu og með umfangsmikinn veiðibúskap en þeim kapítula er lokið.“
"Við vorum í dentíð með ána á leigu og með umfangsmikinn veiðibúskap en þeim kapítula er lokið.“ Vísir/Valli
Hvergi ský á himni og allt eins og dýrðin á Íslandi verður mest.“ Þannig lýsir Ingvi Hrafn Jónsson sjónvarpsstjóri umhverfi sínu vestur á Mýrum þar sem hann á bústað á bökkum Langár. „Ég held mikið til hér á sumrin í nóttlausri voraldar veröld. Við vorum í dentíð með ána á leigu og með umfangsmikinn veiðibúskap en þeim kapítula er lokið. Sofnum samt og vöknum við árniðinn,“ lýsir hann og þessi „við“ eru hann og kona hans Ragnheiður Sara Hafsteinsdóttir.

Ingvi Hrafn á merkisafmæli í dag. „Ég er víst sjötíu og fimm en trúi því ekki sjálfur, lít í spegil og sé ekki þennan gamla mann sem á að birtast mér og er með þessa kennitölu,“ segir hann og kveðst ekki hafa yfir miklu að kvarta öðru en því að hafa nýlega þurft að sjá á eftir besta vini sínum til 70 ára, Orra Vigfússyni. „Orri var 17 dögum eldri en ég og við kvöddum hann á afmælisdaginn hans. Svo þessi afmælisdagur minn er tregablandinn en ég brosi gegnum tárin því barnabörnin knúsa afa alltaf og segja honum að þau elski hann. Það er notalegt.“ Aðspurður kveðst hann eiga fjögur barnabörn. „Við hjónin eigum tvo syni og þeir eiga tvö börn hvor. Það eru þrír strákar og ein stelpa. Stórfjölskyldan verður hér í dag enda viðrar til þess að grilla úti og hafa það huggulegt.“

Þó Ingvi Hrafn sé fæddur og uppalinn í Reykjavík eru ræturnar norðlenskar og norskar. „Ég er ættaður frá tveimur stöðum í Eyjafirði og svo er einn norskur Tynesarleggur, móðurafi minn var norskur. Sólvangur heitir eftir sumarbústaðnum sem við áttum í Siglufirði, þaðan á ég mínar yndislegustu bernskuminningar og undanfarin ár hef ég farið þangað nokkrum sinnum. Bærinn er vaknaður úr þyrnirósarsvefni sem hófst eftir að síldin hvarf, einn af sonum Siglufjarðar er að skila uppeldinu sínu og nú eru allir að dytta að sínum húsum þar. Það er mikið gleðiefni. Ef ég ætti óskastað þá væri það að sitja klofvega yfir Íslandi með vinstri löppina ofan í Stangarhyl í Langá og hægri löppina í Mjósundi í Aðaldal og horfa á Siglufjörð. Það væri fullkomið.“ 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.