Innlent

Skúta tafði fyrir umferð á Hafnarfjarðarvegi

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Báturinn olli töfum í umferðinni.
Báturinn olli töfum í umferðinni. Vísir/Vilhelm
Umferðartafir urðu í dag á Hafnarfjarðarvegi rétt fyrir klukkan þrjú í dag, þegar skúta féll af kerru bíls, sem var að flytja hann.

Að sögn lögreglu urðu engin slys á fólki vegna atviksins, en mestar tafir voru á meðan beðið var eftir flutningabíl til þess að ferja bátinn af vettvangi.

Unnið er að því að koma skútunni í bílinn.

Uppfært kl. 16:26. Samkvæmt tilkynningu frá lögreglu er búið að fjarlæga skútuna og opna allar akreinar á Hafnarfjarðarvegi.

Vísir/Vilhelm



Fleiri fréttir

Sjá meira


×