Innlent

Reyndi að bíta og hrækja á lögreglu á Seltjarnarnesi

Atli Ísleifsson skrifar
Konan var vistuð í fangaklefa.
Konan var vistuð í fangaklefa. Vísir/Eyþór
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var beðin um aðstoð að Miðbraut á Seltjarnarnesi að ganga klukkan þrjú í nótt en þar var kona ofurölvi fyrir utan hús með mikil læti.

Í dagbók lögreglu segir að við handtöku hafi konan reynt að bíta lögreglumenn og hrækja á þá og var hún vistuð í fangaklefa.

Þá var óskað eftir aðstoð lögreglu að hóteli við Þórunnartún en þar var aðili að reyna komast inn á hótelherbergi sem hann tilheyrði honum ekki. Honum var vísað út af hótelinu af lögreglu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×