Árlegt góðgerðarmót Nesklúbbsins og DHL Express á Íslandi, Einvígið á Nesinu, verður haldið í 21. skipti á Nesvellinum á mánudaginn kemur.
Tíu af bestu kylfingum landsins fyrr og síðar er boðið til leiks eins og venjan hefur verið. Í ár spila kylfingarnir í þágu Vinaliðaverkefnisins sem leggur áherslu á að stöðva einelti í skólum.
Heimamaðurinn Oddur Óli Jónasson úr Nesklúbbnum fær tækiffæri til að verja titilinn sinn en hann er einn af fjórum keppendum í ár sem hafa unnið Einvígið. Hinir eru Björgvin Þorsteinsson, Björgvin Sigurbergsson og Kristján Þór Einarsson.
Mótið verður með hefðbundnu sniði, þ.e. klukkan 10.00 leika keppendur 9 holu höggleik og kl.13.00 hefst svo Einvígið sjálft, (shoot-out) þar sem einn kylfingur dettur út á hverri holu, þar til tveir berjast að lokum um sigurinn á 18. holu.
DHL Express á Íslandi hefur verið styrktaraðili mótsins frá því að það var fyrst haldið árið 1997 og á þessum tíma styrkt félög eða samtök sem láta sér hag barna varða um hátt á annan tug milljóna króna. Vinaliðaverkefnið nýtur í ár góðs af og fær eina milljón króna frá DHL.
Þátttakendur í Einvíginu á Nesinu 2017:
Birgir Björn Magnússon GK ı Klúbbmeistari GK 2017
Björgvin Sigurbergsson GK ı Margfaldur Íslandsmeistari í golfi
Björgvin Þorsteinsson GA ı Sexfaldur Íslandsmeistari og Íslandsmeistari 35 ára og eldri 2017
Guðmundur Rúnar Hallgrímsson GS ı Klúbbmeistari GS 2017
Ingvar Andri Magnússon GR ı Íslandsmeistari 17-18 ára 2017
Kristján Þór Einarsson GM ı Klúbbmeistari GM 2017
Oddur Óli Jónasson NK ı Klúbbmeistari NK 2017 og sigurvegari Einvígisins 2016
Ragnhildur Kristinsdóttir GR ı Landsliðskona og meðlimur í TEAM ICELAND
Úlfar Jónsson GKG ı Sexfaldur Íslandsmeistari í golfi
Valdís Þóra Jónsdóttir GL Íslandsmeistari 2017 og atvinnukylfingur
Sigurvegarar frá upphafi
1997 Björgvin Þorsteinsson
1998 Ólöf María Jónsdóttir
1999 Vilhjálmur Ingibergsson
2000 Kristinn Árnason
2001 Björgvin Sigurbergsson
2002 Ólafur Már Sigurðsson
2003 Ragnhildur Sigurðardóttir
2004 Magnús Lárusson
2005 Magnús Lárusson
2006 Magnús Lárusson
2007 Sigurpáll Geir Sveinsson
2008 Heiðar Davíð Bragason
2009 Björgvin Sigurbergsson
2010 Birgir Leifur Hafþórsson
2011 Nökkvi Gunnarsson
2012 Þórður Rafn Gissurarson
2013 Birgir Leifur Hafþórsson
2014 Kristján Þór Einarsson
2015 Aron Snær Júlíusson
2016 Oddur Óli Jónasson
