Einn af leiðtogum Al-Kaída drepinn í drónaárás Bandaríkjahers Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 27. febrúar 2017 14:25 Frá loftárás á bíl hryðjuverkamanna í Idlib síðastliðið sumar. vísir/getty
Abu al-Khayr al-Masri, einn af leiðtogum hryðjuverkasamtakanna Al-Kaída, var drepinn í drónaárás Bandaríkjahers á bíl í borginni Idlib í norðvesturhluta Sýrlandi í gær. Frá þessu er greint á vef breska dagblaðsins Guardian en Masri hafði verið virkur í samtökunum í þrjá áratugi og var tengdasonur stofnanda þeirra, Osama bin Laden, sem drepinn var af bandarískum sérsveitarmönnum í Pakistan í maí 2011. Varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna staðfesti í dag að það hefði gert árás í norðvestur Sýrlandi en ekkert var gefið upp um það hver eða hverjir voru skotmark hersins. Það hafa hins vegar leiðtogar annarra hryðjuverkahópa gert sem tengjast Al-Kaída og segja að Masri hafi verið drepinn í árásinni. Haft er eftir Hashim al-Hashimi, sem ritað hefur mikið um hryðjuverkahópa í Mið-Austurlöndum, á vef Guardian að dauði Masri sé mikið áfall fyrir Al-Kaída og í raun ekkert minna áfall en dauði bin Laden var á sínum tíma. „Hann er hugmyndafræðilegur leiðtogi samtakanna í Írak, Sýrlandi og Jemen og næstráðandi í samtökunum,“ segir Hashimi. Árið 2005 var Masri skilgreindur sem hryðjuverkamaður af yfirvöldum í Bandaríkjunum og var hann þá sagður bera ábyrgð á samstarfi Al-Kaída við aðra hryðjuverkahópa. Þá er talið að hann hafi verið viðriðinn sprengjuárásir sem gerðar voru á bandarísku sendiráðin í Tansaníu og Kenýu árið 1998 þar sem 200 manns létust, aðallega óbreyttir borgarar.
Mest lesið Leiðtogi Hezbollah allur Erlent „Óþekku börnin frá Grindavík“ vakti úlfúð Innlent Drakk beint úr könnunni og svelgdist á Erlent Brotthvarf Katrínar hafði mikil áhrif Innlent Þyrlan kölluð út vegna fjórhjólaslyss Innlent Verkfall á hjúkrunarheimilum ef lausn næst ekki á mánudag Innlent „Verðmæti fólgin í því að halda Reykjanesbraut opinni“ Innlent Draumurinn að fríbúðir skjóti upp kollinum um alla borg Innlent „Ég hitti ungt fjölskyldufólk sem er gjörsamlega að kikna“ Innlent Orbán ber til baka ummæli ráðgjafa um uppgjöf fyrir Rússum Erlent Fleiri fréttir Neyddist til að aflífa 125 krókódíla í útrýmingarhættu Öllum flugferðum til Beirút aflýst Drakk beint úr könnunni og svelgdist á Leiðtogi Hezbollah allur Loftárásir á meint vopnabúr Hezbollah í Beirút Orbán ber til baka ummæli ráðgjafa um uppgjöf fyrir Rússum Tugir látnir í fjórum ríkjum af völdum Helenar Borgarstjóri New York lýsir yfir sakleysi sínu Netanjahú sagðist mættur til að svara „lygum“ annarra þjóða Gerðu umfangsmikla atlögu að leiðtoga Hezbollah Selenskí fundaði með Trump Sjö hundruð liggja í valnum eftir vikuna Nýjasti kafbátur Kínverja sökk við bryggju Einn stærsti fellibylur síðustu hundrað ára veldur usla í Flórída Vísbending um að jörðin gæti lifað áfram sem niflheimur Ishiba verður næsti forsætisráðherra Japans Ítalía tekur aftur upp agaviðurlög frá tíma Mussolini Netanyahu hafnar tillögum um vopnahlé milli Ísrael og Hezbollah Vísar á bug tillögum um frið í skiptum fyrir úkraínskt land Ákærður fyrir mútuþægni og fjársvik Þingmaður sagði fólki frá Haítí að „drulla sér“ frá Bandaríkjunum Lögðu hald á síma borgarstjórans Sendir Patriot, svifsprengjur og skotfæri til Úkraínu Nákvæmasta kortið af Vetrarbrautinni til þessa Sýknaður eftir meira en 50 ár á dauðadeild Segir tortímingu eða uppgjöf Hezbollah einu lausnina Alríkisákærur gefnar út á hendur borgarstjóra New York Hótar að beita kjarnorkuvopnum gegn árás með hefðbundnum vopnum Vinna að þriggja vikna vopnahléi á milli Ísrael og Hezbollah Selenskí varar við „kjarnorku hörmung“ Sjá meira