Fimm hlutir sem við getum ekki gleymt úr Englandsleiknum Stefán Ó. Jónsson skrifar 27. júní 2017 11:15 Þáskeggjaði fyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson ærðist manna mest eftir að ,,Skomina, þarna, dómarinn þinn'' flautaði leikinn af í Nice. Vísir/getty
Þann 27. júní 2016, fyrir nákvæmlega einu ári síðan, vann íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu líklega fræknasta sigur í hópíþróttasögu þjóðarinnar. Knattspyrnustórveldið England mátti sín þá lítils gegn litla Íslandi í 8-liða úrslitum Evrópumótsins í knattspyrnu í Nice í Frakklandi. Lokatölur 2-1 fyrir Ísland, úrslit sem riðu eins og höggbylgja yfir heimsbyggðina. Strákarnir urðu stjórstjörnu á einni nóttu, Englendingar þurftu að finna sér nýjan landsliðsþjálfara og Íslendingar liðu um í sæluvímu í heila viku. Hér að neðan höfum við tekið saman 5 atriði um leikinn sem við gleymum aldrei.1. Leikurinn sjálfurByrjum á byrjuninni. Leikurinn er sem brenndur í heilabörk þjóðarinnar. Vítaspyrnudómurinn í upphafi, mark Ragnars Sigurðssonar 2 mínútum síðar og skot Kolbeins Sigþórssonar sem rann undir markmann Englendinga þegar rétt um 18 mínútur voru liðnar af leiknum. Þrátt fyrir að vera einungis 37% með boltann í leiknum og Englendingar hafi átt 18 marktilraunir var sigurinn nær aldrei í hættu. Hér að neðan er stiklað á stóru í leiknum.Fyrrverandi landsliðsþjálfari Englands, Steve McClaren var að fylgjast með leiknum í útsendingu Sky News á meðan staðan var enn 1-1. McClaren fór að gera lítið úr íslenska liðinu sem væri með takmarkaða getu í sókninni. Hann kallaði Kolbeinn Sigþórsson „Sigurðsson“ áður en hann var leiðréttur og svo gerðist það. Kolli skoraði og McClaren varð orðlaus.2. Tæklingin hans Ragga Það mætti minnast á mörg atriði úr leiknum sem segja má að hafi staðið upp úr; t.a.m. mörk Íslands, þegar landsliðsfyrirliðinn komst einn á móti marki í lok leiks eða bakfallspyrnan hans Ragnars. Það var þó eitt augnablik sem fékk íslensku þjóðina til að standa á öndinni. Tæklingin hans Ragga. Rúmlega 70 mínútur voru komnar á klukkuna þegar einn heitasti framherji ensku úrvaldsdeildarinnar, Jamie Vardy, komst í upplagt marktækifæri. Það eina sem stóð í vegi hans var Ragnar Sigurðsson. Raggi gerði sér lítið fyrir og hljóp hinn skruggufljóta Vardy uppi og henti sér fyrir hann. Hefði Raggi misreiknaði sig hefði það annað hvort endaði með jöfnunarmarki eða honum hefði umsvifalaust verið vísað út af. Það sem hann bauð hins vegar upp á var tækling Evrópumótsins.Straujárn voru nefnd í höfuðið á Ragnari eftir þessa tæklingu.Vísir/Getty3. Lokaflautið Englendingar höfðu legið á íslensku vörninni þegar kom að síðustu spyrnu leiksins. Harry Kane, sem var hörmulegur í leiknum, fékk tækifæri til að senda boltann inn í vítateig Íslands þegar rúmlega 3 mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma. Síðasti sénsinn fyrir stórveldið til að jafna leikinn og knýja fram framlengingu. Markmaður Englands var kominn inn í teiginn - öllu tjaldað til. Hornspyrna Kane rataði beint á kollinn á Deli Alli sem skallaði boltann í jörðina og lengst framhjá markinu. Í þann mund flautaði dómarinn, Damir Skomina, leikinn af og Íslendingar gengu af göflunum. Myndband sem Hannes Halldórsson birti eftir leikinn fangaði vel brjálæðið sem rann um æðar Íslendinga eftir leikinn.4. Viðbrögðin Eftirköstin voru ekki lengi að gera vart við sig. Roy Hodgson, landsliðsþjálfari Englendinga, sagði af sér strax eftir leikinn. Hann hefur líklega áttað sig á því hvurslags útreið ensku dagblöðin buðu upp á á forsíðum sínum daginn eftir. „Cod help us,“ sagði Daily Star. „Mesta niðurlæging Englands,“ sagði Telegraph og vísanir í Brexit voru ekki langt undan. Einungis fjórum dögum áður höfðu Bretar í þjóðaratkvæðagreiðslu ákveðið að stefna að úrsagnarferli úr Evrópusambandinu - niðurstaða sem kom mörgum á óvart. Þó ekki jafn mörgum og niðurstaðan sem íslenska landsliðið bauð upp á einungis hálfri viku síðar. Fleiri forsíður má nálgast hér.Tuesday's Daily Star back page:Cod help us#Tomorrowspaperstoday #bbcpapers #EURO2016 #ISL #eng pic.twitter.com/XXLoV4wTnX— Nick Sutton (@suttonnick) June 27, 2016 Tuesday's Daily Mirror back page:Brrrexit Hodgson#Tomorrowspaperstoday #bbcpapers #EURO2016 #ISL #eng pic.twitter.com/20QklRr5Wq— Nick Sutton (@suttonnick) June 27, 2016 #ENG v #ISL pic.twitter.com/yaYiAFWZdU— Conor McNamara (@ConorMcNamaraIE) June 27, 2016 Rætt var um úrslitin í öllum helstu spjallþáttum heimsins. Stephen Colbert, vinsælasti kvöldþáttastjórnandinn vestanhafs, komst þannig ekki hjá því að minnast á mestu niðurlægingu Englendinga „síðan á föstudaginn.“This is literally the worst day in English history since Friday.— Maxi Rodriguez (@FutbolIntellect) June 27, 2016 Þá þótti honum mikið til lýsingar Guðmundar Benediktssonar koma sem hann sagði að hljómaði eins og hann hefði fest höndina í sorpkvörn. 5. Stuðningsmennirnir Það var þó ekki einungis leikurinn sjálfur sem stal fyrirsögnum um heim allan. Íslenska þjóðin vann hug og hjörtu knattspyrnuáhugamanna um víða veröld fyrir einarðan stuðning á Evrópumótinu og tókst henni að eigna sér hið skoska Víkingaklapp sem ómaði um alla álfuna. Myndskeið af fögnuði Íslendinga í Frakkland og Arnarhóli fóru sem eldur í sinu um netheima og þótti erlendum miðlum sérstaklega gaman að minnast á að um 10% þjóðarinnar höfðu lagt leið sína á Evrópumótið. Það var því ekki nema von að heimasíða WOW Air hafi hrunið eftir leikinn þegar hin 90% þjóðarinnar vildu allt í einu öll komast til Frakklands. Enginn vildi missa af næstu viðureign í vegferð Íslendinga á Evrópumótinu. Næst yrðu það gestgjafarnir á sjálfum þjóðarleikvanginum í París. Sá leikur fór fram en það er öllum sama hvernig hann fór.YEAH!!!!!!!!!!!! #EURO2016 #emisland #emtorgið #isl #iceland #isleng pic.twitter.com/6qB3H1Bu5D— K100island (@K100island) June 27, 2016 Strákarnir voru hylltir í brakandí blíðu á Austurvelli við heimkomuna. Vísir var að sjálfsögðu í beinni. Útsendinguna má sjá hér að neðan. Fleiri áhugaverða fleti á þessum sögulega leik má sjá í tengdum fréttum hér að neðan.
Tengdar fréttir EM í dag: Reknir út af Stadé de Nice og Ragga Sig til Liverpool, núna! Enginn Íslendingur mun gleyma hvar hann var þegar Ísland lagði England á EM í Frakklandi. 28. júní 2016 09:00 BBC um forsíðu Fréttablaðsins: „No translation needed“ Forsíða Fréttablaðsins í dag hefur vakið nokkra athygli á Twitter en hana prýðir svokölluð kápa líkt og í seinustu viku eftir leik Íslands og Englands. 4. júlí 2016 11:25 Þetta er myndbandið sem strákarnir horfðu á fyrir Englandsleikinn Gæsahúðarmyndband sem kom okkar mönnum í gírinn fyrir leikinn gegn Englandi í 16-liða úrslitum. Willem Dafoe kastaði kveðju á strákana. 1. júlí 2016 13:29 Í fyrsta skipti í sögunni sem forsetahjón hittast - Myndir Verðandi forsetahjón hittu núverandi forsetahjón í Nice í dag. 27. júní 2016 14:55 Ragnar Sigurðsson bestur í íslenska liðinu á EM | Meðaleinkunnir strákanna okkar Miðverðirnir verið bestir á EM 2016 þar sem Ísland er komið í átta liða úrslit 28. júní 2016 20:30 Tap Englands kostaði Íslenskar getraunir formúu Aldrei hefur eins há upphæð verið greidd út í verðlaunafé fyrir einstakan leik á Lengjunni. 28. júní 2016 14:23 Leikmenn Wales sjá ekki eftir því að hafa fagnað sigri Íslands: „Allir halda með Íslandi“ Leikmenn Wales trylltust af gleði þegar flautað var til leiksloka í Nice. 29. júní 2016 15:30 Rólegasti maðurinn á Arnarhóli orðin frægur í Danmörku | Myndband Myndirnar af Íslendingum fagna sigri á enska landsliðinu á Arnarhóli hafa verið sýndar út um allan heim enda áhuginn mikill á afreki íslenska fótboltalandsliðsins á Evrópumótinu í Frakklandi. 28. júní 2016 23:30 Veðmálabransinn nötrar vegna íslenska liðsins Gengi Íslands reynist veðmálafyrirtækjum erfitt og nú nötrar allt vegna Frakklandsleiksins. 30. júní 2016 11:42 Iceland bætir Englendingum upp tapið með fríum bjór Breska verslunarkeðjan Iceland ætlar að bæta Englendingum upp tapið fyrir Íslandi á EM 2016 með því að bjóða upp á frían bjór í dag. 28. júní 2016 14:36 Mest lesið „Enduðum á að kyssast í skrifstofustólnum hans“ Lífið Hætti í fússi eftir linnulausar svívirðingar nettrölla Lífið Eiginkona bassaleikara Weezer skotin af lögreglu Lífið Stóri bróðir skammar Rourke: „Ef ég verð lengur en fjóra daga þá verðurðu ekki hinsegin lengur“ Lífið Rísandi stórstjarna og alvöru hjartaknúsari Bíó og sjónvarp Ofurskvísur eins klæddar á ofurskvísuæfingu Lífið Huggulegustu leikarar landsins undir einu þaki Lífið Lúxus heilsulind á heimsmælikvarða fyrir Íslendinga Lífið samstarf Margrét selur hönnunarperlu í Skerjafirði Lífið Mundi ekki hver stýrði Newcastle United um aldamótin Lífið Fleiri fréttir Stóri bróðir skammar Rourke: „Ef ég verð lengur en fjóra daga þá verðurðu ekki hinsegin lengur“ Huggulegustu leikarar landsins undir einu þaki Ofurskvísur eins klæddar á ofurskvísuæfingu Mundi ekki hver stýrði Newcastle United um aldamótin Einstök geymslutiltekt á Birkimel: „Hlutirnir hjálpa mér að muna“ Eiginkona bassaleikara Weezer skotin af lögreglu Stórglæsilegir vinningar í Páskabingói Blökastsins „Enduðum á að kyssast í skrifstofustólnum hans“ Bíó Paradís valið eitt af 21 svölustu kvikmyndahúsum heims Margrét selur hönnunarperlu í Skerjafirði Söngnemendur á Hvolsvelli með Kabarett Íslandsmet? Eiga sex barnabörn í leikskólanum á Vopnafirði Hætti í fússi eftir linnulausar svívirðingar nettrölla Draumur breska þríeykisins rætist á Húsavík Pitsurnar til styrktar minningarsjóðnum rjúka út Eyddu undir hundrað þúsund krónum í matarinnkaup í desember Heillandi sumarhús úr smiðju Leifs Welding: Jensen rúm fylgir með kaupunum Katrín Halldóra fyllir í stóra skó Segir óheilbrigt að pör djammi mikið hvort í sínu lagi Innlit í rúmlega 270 milljóna króna þakíbúð á Orkureitnum Svona var fjögurra rétta matseðillinn Líkaminn þarf ekki að vera fullfrískur til að upplifa unað Guðni Th. orðinn afi Fólk geti gengið frá kaupsamningum sjálft Lifir eins og kóngur á 150-200 þúsund krónum á mánuði Þakkar aðal sykurpabbanum fyrir allt Gellurnar fjölmenntu á gugguvaktina Greindist með skyrbjúg eftir notkun megrunarlyfs Slæm hárgreiðsla Steinda varð enn verri Herra Hnetusmjör og Sara selja lúxusíbúð innan við ári eftir kaupin Sjá meira
EM í dag: Reknir út af Stadé de Nice og Ragga Sig til Liverpool, núna! Enginn Íslendingur mun gleyma hvar hann var þegar Ísland lagði England á EM í Frakklandi. 28. júní 2016 09:00
BBC um forsíðu Fréttablaðsins: „No translation needed“ Forsíða Fréttablaðsins í dag hefur vakið nokkra athygli á Twitter en hana prýðir svokölluð kápa líkt og í seinustu viku eftir leik Íslands og Englands. 4. júlí 2016 11:25
Þetta er myndbandið sem strákarnir horfðu á fyrir Englandsleikinn Gæsahúðarmyndband sem kom okkar mönnum í gírinn fyrir leikinn gegn Englandi í 16-liða úrslitum. Willem Dafoe kastaði kveðju á strákana. 1. júlí 2016 13:29
Í fyrsta skipti í sögunni sem forsetahjón hittast - Myndir Verðandi forsetahjón hittu núverandi forsetahjón í Nice í dag. 27. júní 2016 14:55
Ragnar Sigurðsson bestur í íslenska liðinu á EM | Meðaleinkunnir strákanna okkar Miðverðirnir verið bestir á EM 2016 þar sem Ísland er komið í átta liða úrslit 28. júní 2016 20:30
Tap Englands kostaði Íslenskar getraunir formúu Aldrei hefur eins há upphæð verið greidd út í verðlaunafé fyrir einstakan leik á Lengjunni. 28. júní 2016 14:23
Leikmenn Wales sjá ekki eftir því að hafa fagnað sigri Íslands: „Allir halda með Íslandi“ Leikmenn Wales trylltust af gleði þegar flautað var til leiksloka í Nice. 29. júní 2016 15:30
Rólegasti maðurinn á Arnarhóli orðin frægur í Danmörku | Myndband Myndirnar af Íslendingum fagna sigri á enska landsliðinu á Arnarhóli hafa verið sýndar út um allan heim enda áhuginn mikill á afreki íslenska fótboltalandsliðsins á Evrópumótinu í Frakklandi. 28. júní 2016 23:30
Veðmálabransinn nötrar vegna íslenska liðsins Gengi Íslands reynist veðmálafyrirtækjum erfitt og nú nötrar allt vegna Frakklandsleiksins. 30. júní 2016 11:42
Iceland bætir Englendingum upp tapið með fríum bjór Breska verslunarkeðjan Iceland ætlar að bæta Englendingum upp tapið fyrir Íslandi á EM 2016 með því að bjóða upp á frían bjór í dag. 28. júní 2016 14:36
Stóri bróðir skammar Rourke: „Ef ég verð lengur en fjóra daga þá verðurðu ekki hinsegin lengur“ Lífið
Stóri bróðir skammar Rourke: „Ef ég verð lengur en fjóra daga þá verðurðu ekki hinsegin lengur“ Lífið