Leikmaður svaraði hráku áhorfanda með því að hóta honum með hníf í miðjum leik Tómas Þór Þórðarson skrifar 29. mars 2017 11:00 Stúkan er frá heimavelli Sawbridgeworth en hnífurinn tengist efni fréttar ekki beint. vísir
Leikmaður í utandeildinni á Englandi sætir nú rannsókn hjá lögreglunni í Hertfordskíri eftir að hann hótaði áhorfanda með hníf í miðjum leik. Leikmaðurinn fékk lífstíðarbann hjá félagi sínu, Sawbridgeworth Town, fyrir verknaðinn. Atvikið átti sér stað undir lok leiks Sawbridgeworth og Clapton á Crofters End-vellinum í Hertforskíri á laugardaginn. Liðin spila í níundu deild enska boltans. The Guardian greinir frá. Því er haldið fram að einn stuðningsmaður Clapton hrækti á umræddan leikmann sem brást við með því að sækja hníf og sveifla honum í áttina að áhorfandanum. Dómari leiksins, Mario Stetakovic, flautaði leikinn af um leið en komið var fram á fimmtu mínútu í uppbótartíma þegar atvikið átti sér stað. Forsvarsmenn Sawbridgeworth Town höfðu nákvæmlega engan húmor fyrir þessu uppátæki leikmannsins og settu hann í lífstíðarbann hjá félaginu. Hann má ekki einu sinni koma nálægt vellinum. „Félagið er að hjálpa knattspyrnusambandinu í Hertfordshire sem er að vinna með lögreglunni að rannsókn þessa máls. Í staðinn fyrir að bíða eftir niðurstöðu í málinu er félagið búið að grípa til aðgerða og reka leikmanninn,“ segir í yfirlýsingu frá framkvæmdastjóra Sawbridgeworth, Richard Hogg. „Leikmaðurinn mun aldrei spila fyrir þetta félag aftur og hefur fengið lífstíðarbann frá vellinum. Þetta félag hýsir leiki fyrir lið allt frá átta ára aldri þannig við tökum öllu ofbeldi mjög alvarlega.“
Enski boltinn Mest lesið Heimir skildi stórt nafn eftir heima og Írar fagna Fótbolti Uppgjörið: Omonia - Víkingur 4-0 | Seig á ógæfuhliðina í seinni hálfleik Fótbolti Guðjohnsen snýr aftur á Brúna: „Sérstakt fyrir mig og pabba“ Fótbolti Bruno sá aftur rautt en Maguire bjargaði stigi í uppbótartíma Fótbolti Í beinni: Tindastóll - KR | KR-ingar mæta aftur til leiks Körfubolti Maradona verður grafinn upp Fótbolti „Slúðrað og talað um mig í öllum hornum“ Handbolti Í beinni: FH - Valur | Stórleikur á Hlíðarenda Handbolti Frumsýna nýja Evróputreyju Fótbolti Finnur til með Ten Hag og býður honum í glas Fótbolti Fleiri fréttir Valinn í landsliðið í fyrsta sinn í sjö ár Holdafarsummæli Guardiola sem myllusteinn um háls Phillips Henry hélt að Saka yrði ekki það góður „Hann er klárlega magnaður þjálfari“ Leikmaður City handtekinn fyrir að stela síma Sakar leikmenn United um leti á æfingum Bann og sekt fyrir að kalla fjórða dómara „litla helvítis kuntu“ Rauða spjaldið hans Bruno dregið til baka Scholes brjálaður: De Ligt geti ekkert og ten Hag þjálfi liðið varla Fyrirliðinn segir Íslendingaliðið of gott fyrir C-deildina Heimamenn kláruðu dæmið í fyrri hálfleik Dómarinn fyrrverandi segir Bruno hafa átt að fá gult Leikmenn láta í sér heyra: „Við erum í hættu“ Liverpool ekki meistaraefni: „Eru langt á eftir City og Arsenal“ Spilar ekki í deildinni fyrr en í nóvember Ten Hag verði ekki rekinn Leikurinn ekki stöðvaður þó svo maður hafi dáið í stúkunni „Viðbjóðsleg“ frammistaða sem lætur stjóra missa starfið Dagný fékk gult þegar Hamrarnir nældu í sitt fyrsta stig Delap bjargaði stigi fyrir nýliðina Tottenham lék tíu United-menn grátt Upphafið að endinum hjá Ten Hag? Gerði grín að Konaté sem vildi verða maður leiksins Willum Þór skoraði í endurkomu sigri Birmingham Einstakt afrek Brentford dugði skammt en Everton vann loksins Arsenal skaut Refina í blálokin Palmer skoraði fernu í fyrri hálfleik Liverpool á toppnum „Við tökum stiginu“ Vandræði Man City án Rodri halda áfram Sjá meira