Hundaeigendur telja sig eiga undir högg að sækja Jakob Bjarnar skrifar 10. mars 2017 15:03 Freyja (t.h.) telur alveg ljóst að gjöldin sem hundaeigendur greiða fari í eitthvað allt annað en þau þjónustu við hundeigendur. Árný hjá heilbrigðiseftirlitinu segir þessa peninga ekkert ætlaða í það.
Skorist hefur í odda milli Félags ábyrgra hundaeigenda og svo heilbrigðiseftirliti Reykjavíkurborgar, sem hefur yfir hundaeftirliti borgarinnar að segja. Freyja Kristinsdóttir dýralæknir og stjórnarmaður í Félagi ábyrgra hundaeigenda, segir heilbrigðiseftirlitið ala á fordómum gagnvart hundaeigendum. Þá telur Freyja ekki ólíklegt að brotin séu lög gagnvart hundaeigendum með því að nota hundagjöld til annarra útgjaldaliða en kveðið er á um í lögum. Freyja birti á miðvikudaginn grein á vef Ábyrgra hundaeigenda þar sem hún fer í saumana á starfsemi hundaeftirlitsins að teknu tilliti til þeirra gjalda sem hundaeigendum er gert að inna af hendi. Freyja telur alveg fyrirliggjandi að gjöldin fari í eitthvað allt annað en til þess málaflokks; þjónustu við hundaeigendur. Freyja reiknaði meðal annars það út að hundaeigendur í Reykjavík greiða 35 milljónir á ári í formi hundaleyfisgjalda, sem fer í að halda uppi hundaeftirlitinu.Freyja með tíkina Dimmalimm sem er Border Terrier. Myndin er tekin í Danmörku þar sem Freyja er búsett en hún er nú flutt heim.„Stór partur af þessu, 23 milljónir, fer í að greiða laun starfsmanna hundaeftirlitsins. Starfsmennirnir eru þrír, þ.e.a.s. tveir hundaeftirlitsmenn og einn ritari, og svo greiða hundaeigendur líka 30% af launum framkvæmdastjóra heilbrigðiseftirlitsins, þrátt fyrir að hundaeftirlitið sé aðeins 12% af heilbrigðiseftirlitinu, ef miðað er við fjölda starfsmanna,“ segir í úttekt Freyju. Heilbrigðiseftirlitið hefur svarað grein Freyju með yfirlýsingu á vef sínum. Þar segir meðal annars: „Af þessu tilefni er nauðsynlegt að taka það skýrt fram að samþykkt Reykjavíkurborgar um hundahald er ekki sett fyrir hundeigendur sérstaklega heldur alla borgarbúa hvort sem þeir eru hundeigendur eða ekki.“Berlín útópía hundafólksFreyja segir þetta til marks um undarlegt viðhorf. Ekki sé verið að þjónustu hundaeigendur á nokkurn hátt. „Og þegar maður spyr er tekið fram að gjöldin séu ekki til að þjónusta hundaeigendur heldur til að þjónusta alla borgarbúa vegna þess ama, óþægindum og óþrifnaði sem hundahald veldur,“ segir Freyja. En, á síðu Félags ábyrgra hundaeigenda hefur svari heilbrigðiseftirlitsins verið svarað lið fyrir lið.Frá Geirsnefi, en það er einn fárra staða þar sem má hafa hunda lausa í Reykjavík.visir/vilhelmSpurð telur Freyja það fyrirliggjandi að verið sé að hafa hundaeigendur að féþúfu. Árný Sigurðardóttir er framkvæmdastjóri heilbrigðiseftirlits Reykjavíkurborgar og hún hefur látið hafa eftir sér, í 10 fréttum RUV í gærkvöldi, að gjöld sem þessi séu víða svo sem í Berlín, sem Freyja segir ekki rétt, þessi gjöld séu ekki víða en vissulega í Berlín. Freyja telur þetta afar óheppilegt dæmi sem Árný tiltekur. „Berlín er útópía hundafólks. Þar er allt gert fyrir hunda og hundaeigendur. Og gjöld þar renna í að byggja upp hundasvæði sem ekki er gert hér.“Hundaeftirlit elur á fordómumFreyja segir að sér virðist sem vinnubrögð heilbrigðiseftirlitsins reist á því að hundafólk sé illa þokkað og eigi undir högg að sækja. „Þetta eru fordómar og gamlir fordómar frá því að hundahald var bannað. Samþykkt um hundahald hefur lítið breyst síðan hundahald var leyft.“ Freyja telur ekki orðum aukið að óánægja sé kraumandi meðal hundaeigenda með það hvernig málum sé hér háttað. Hún segir ekki liggja fyrir hversu margir hundaeigendur séu í Reykjavík og það er vegna þess hvernig skráningum sé háttað, hún sé ekki nógu góð. Í Reykjavík eru 2.600 hundar skráðir en Freyja segir að án ábyrgðar megi gera ráð fyrir því að þeir séu helmingi fleiri. Einfaldlega vegna þess að margir hundaeigendur láta undir höfuð leggjast að skrá hunda sína og greiða gjöld. Þeir sjái ekki tilganginn með því.Hvar er þessi ritari?Freyja segir að sér þyki athyglisvert að í yfirlýsingu heilbrigðiseftirlitsins komi fram að bókhald og rekstur hundaeftirlitsins sé algerlega aðskilið frá rekstri heilbrigðiseftirlitsins að öðru leyti. Hún á erfitt með að fá það til að ganga heim og saman vegna þess að meginverkefnið hljóti að snúa að lausagöngu hunda. Samkvæmt hennar útreikningum, en einn hundur er handsamaður að meðaltali á viku, sem þá þýðir að kostnaður við það er hálf milljón á hund.Hundar að leik á Geirsnefi. Ekki er öllum vel við hunda, svo mikið er víst en þeir þessir láta sig það litlu skipta heldur lifa í núinu.visir/vilhelmFreyja spyr sig hvort verið sé að taka þann pening sem til fellur vegna hundagjaldanna til annars reksturs sem er þá í þágu allra borgara og þannig sé um hreina og klára mismunun að ræða. „Við erum að borga fyrir 3 starfsmenn hundaeftirlitsins og einn þeirra er ritari. Hver er það? Það eru bara einhverjir tilfallandi ritarar heilbrigðiseftirlits sem svara fyrirspurnum eða Árni. Þarna er enginn ritari. Ef það er svo er verið að brjóta lög.“Byrjað á góðum nótum en fljótlega fór að kárna gamaniðFreyja hefur grúskað í þessum málum frá árinu 2010. Hún segir að þær Árný þekkist ágætlega. Allt hafi þetta byrjað á góðum nótum milli Félags ábyrgra hundeigenda og svo heilbrigðiseftirlitsins. Félagið hafi verið duglegt að koma með ábendingar og hugmyndi en viðbrögðin hafi ekki verið í nokkru samræmi við góðan hug félagsmanna. „Viðbrögðin sem við höfum fengið hafa verið eins og við séum ekki neitt. Nú er svo komið að við viljum að það verði farið í saumana á þessu eftirliti. Viljum fá þetta svart á hvítt, í hvað þetta er að fara?“ Vísi tókst ekki að ná tali af Árný Sigurðardóttur, framkvæmdastjóra heilbrigðiseftirlitsins, en samkvæmt þjónustuveri borgarinnar var hún skráð á fund þá er Vísir reyndi að fá samband við hana. Þó yfirlýsingin liggi fyrir eru ýmsar spurningar sem snúa að þessu máli útistandandi.
Mest lesið Leiðtogi Hezbollah allur Erlent „Óþekku börnin frá Grindavík“ vakti úlfúð Innlent Drakk beint úr könnunni og svelgdist á Erlent Brotthvarf Katrínar hafði mikil áhrif Innlent Þyrlan kölluð út vegna fjórhjólaslyss Innlent Verkfall á hjúkrunarheimilum ef lausn næst ekki á mánudag Innlent „Verðmæti fólgin í því að halda Reykjanesbraut opinni“ Innlent „Ég hitti ungt fjölskyldufólk sem er gjörsamlega að kikna“ Innlent Draumurinn að fríbúðir skjóti upp kollinum um alla borg Innlent Orbán ber til baka ummæli ráðgjafa um uppgjöf fyrir Rússum Erlent Fleiri fréttir „Ég hitti ungt fjölskyldufólk sem er gjörsamlega að kikna“ Þyrlan kölluð út vegna fjórhjólaslyss Ullarvika til heiðurs íslensku sauðkindinni „Óþekku börnin frá Grindavík“ vakti úlfúð Verkfall á hjúkrunarheimilum ef lausn næst ekki á mánudag „Verðmæti fólgin í því að halda Reykjanesbraut opinni“ Úrbætur á gæsluvarðhaldsúrræði fyrir unglinga og upphaf körfuboltatímabilsins Skoða betri úrræði fyrir unglinga í gæsluvarðhaldi Brotthvarf Katrínar hafði mikil áhrif Hafði „útdraganlega kylfu“ meðferðis Nýliðar hlakka til að láta að sér kveða: „Finnst vanta fólk eins og mig“ Draumurinn að fríbúðir skjóti upp kollinum um alla borg Ekki hægt að aldursskipta börnum á Stuðlum í miðjum stormi „Skítastaða“ á Stuðlum, vongóðir nýliðar og búð þar sem allt er ókeypis „Það verður að láta reyna á þessar kærur“ Listamaðurinn Jón Gnarr hættir og pólitíkusinn tekur við Líf segir söguna um stóladans Mörtu og Hildar dagsanna Hlaut varanlegan skaða vegna myglu en fær ekki krónu Marta hafnar því alfarið að hafa ítrekað sest í stól Hildar Unglingar á ofsahraða reyndu að stinga lögregluna af Mennirnir tveir fundnir Hólmfríður ætlar í ritara VG Til skoðunar að beita refsisköttum á nikótínpúða Malbika bílastæðin í Reynisfjöru Fluttur með þyrlu eftir bílveltu á Snæfellsnesi Ríkisstjórnin sameini það versta frá bæði vinstri og hægri „Íslenska vegakerfið er líklega hættulegasti ferðamannastaður landsins“ Starfshópur skipaður vegna slysa hjá ferðamönnum Veitingastaður ber ekki ábyrgð á hnefahöggi starfsmanns Má ekki eyða myndböndum sem mátti ekki taka Sjá meira