Höskuldur: Gegnsæi vantar hjá KSÍ Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 9. janúar 2017 14:00 Höskuldur ræðir við fréttamenn í Alþingishúsinu. vísir/Ernir
Höskuldur Þórhallsson, fyrrum þingmaður Framsóknarflokksins, segist enga ákvörðun hafa tekið um hvort hann muni bjóða sig fram til embættis formanns KSÍ. Guðni Bergsson og Björn Einarsson hafa ákveðið að bjóða sig fram en núverandi formaður, Geir Þorsteinsson, mun ekki sækjast eftir endurkjöri. „Ég hef verið í sambandi við fótboltafélög víðsvegar um landið og þau hafa lýst yfir áhuga að styðja mig í þetta embætti,“ sagði Höskuldur í samtali við Hjört Hjartarson í Akraborginni á X-inu 977. „Þau hafa áhyggjur af stöðu knattspyrnunnar á landsbyggðinni og vilja formann utan af landi til að brúa þá gjá,“ sagði hann enn fremur. Hann segist vilja halda áfram því góða starfi sem hefur verið unnið hjá KSÍ síðustu árin. „En það er hægt að gera það faglegra en það er í dag. Ég finn á þeim sem ég ræði við að KSÍ hefur skort að hafa hlutina uppi á borðum. Að það hafi ekki ríkt nægilegt gegnsæi í ákvörðun sem þar hafa verið teknar. Þrátt fyrir það hafa hlutirnir gengið vel.“ Höskuldur á von á því að gefa út yfirlýsingu um framhaldið fyrr en síðar en ítarlegt viðtal við hann má heyra í Akraborginni sem hefst klukkan 16.00 í dag.
KSÍ Íslenski boltinn Tengdar fréttir Höskuldur Þórhallsson íhugar framboð til formanns KSÍ Fyrrverandi þingmaður Framsóknarflokksins segir félög utan af landi hafa verið í sambandi við sig. 9. janúar 2017 12:15 Mest lesið Segir hegðun Brynjars Karls „ekkert annað en ofbeldi“ Körfubolti Fórnaði sér fyrir strákaliðið Sport Hamilton klessti Ferrari-inn á fyrsta degi Formúla 1 City mun mæta Real eða Bayern í umspilinu Fótbolti „Fokking aumingjar“ Körfubolti Hákon kom að marki í stórsigri og Lille tryggði sig beint áfram Fótbolti Liverpool tapaði í Hollandi hélt þó toppsætinu Fótbolti Félagaskiptaglugginn: Hvaða eftirsótti framherji færir sig um set? Fótbolti Lærisveinar Alfreðs úr leik eftir framlengdan leik Handbolti „Markmiðið mitt er að enginn vill mæta okkur í fyrstu umferð úrslitakeppninnar“ Körfubolti Fleiri fréttir Félagaskiptaglugginn: Hvaða eftirsótti framherji færir sig um set? City mun mæta Real eða Bayern í umspilinu Hákon kom að marki í stórsigri og Lille tryggði sig beint áfram Sigur á Spáni lyfti Skyttunum upp í þriðja sætið Liverpool tapaði í Hollandi hélt þó toppsætinu Man City komst í umspilið eftir allt saman Í beinni: Lokaumferðin í Meistaradeildinni Freyr sagður vilja Sævar Atla til Brann Leiðarlok hjá Gerrard og Al Ettifaq Foden skýtur á Southgate Páll sækist ekki eftir endurkjöri hjá KR Amorim og Rashford talast ekki við Allt sem þú þarft að vita fyrir lokaumferð Meistaradeildarinnar í kvöld Ein besta knattspyrnukona heims gifti sig og skipti um nafn Mikael Egill semur við Genoa en klárar tímabilið í Feneyjum Prestur sagði við Gakpo að hann myndi semja við Liverpool Man. United tók annað árið í röð efnilegan leikmann frá Arsenal Freyr óttast það versta eftir leiðindaatvik á æfingu Brann Manchester United fær grænt ljóst fyrir Wembley norðursins Dagskráin í dag: Gummi með átján bolta á lofti á lokakvöldi Tólf leikmenn Liverpool fá hvíld: „Græðum aldrei á að tapa“ Jón Daði óstöðvandi á nýjum stað Brynjólfur kláraði leik 38 dögum síðar Dani fyrstu kaup Amorim hjá Man. Utd Viðurkenna mistök og Arsenal-maðurinn laus við bann Norðurálsmótið fagnar fjörutíu ára afmæli í ár Atli Guðna auglýsir eftir strákum í fótbolta: „Markmiðið að hafa gaman“ Leikmaður Athletic Bilbao stöðvaði vopnaði innbrotsþjófa Tvö af þremur félögum í úrslitaleik Reykjavíkurmóts kvenna eru frá Garðabæ Oliver dæmir um helgina þrátt fyrir morðhótanir Sjá meira
Höskuldur Þórhallsson íhugar framboð til formanns KSÍ Fyrrverandi þingmaður Framsóknarflokksins segir félög utan af landi hafa verið í sambandi við sig. 9. janúar 2017 12:15