Síðasti viðburður sumarsins að Kvoslæk Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 28. september 2017 10:30 Richard Simm og Rut Ingólfsdóttir hafa spilað öll verkin áður, þó ekki á sömu tónleikum.
Belgíski fiðluskólinn er yfirskrift tónleika sem Rut Ingólfsdóttir fiðluleikari og Richard Simm píanóleikari halda í Hlöðunni að Kvoslæk í Fljótshlíð á laugardaginn, 30. september, klukkan 15. Þeir eru síðasti viðburður þessa sumars þar á bæ. Rut stundaði framhaldsnám við tónlistarháskólann í Brussel og hún og Richard ætla að leika verk eftir tónskáldin Vieuxtemps, Wieniawski og Ysaÿe sem allir kenndu við skólann – en löngu fyrir hennar tíð. „Ég man að það voru plattar á veggjum skólans og styttur af þessum mönnum,“ rifjar hún upp. Eftir hlé ætla þau Richard að spila sónötu eftir César Franck sem var belgískur að uppruna. „César Franck-sónatan er eitthvað sem allir fiðluleikarar óska að spila,“ segir hún. „Það sem er svo skemmtilegt er að César Franck gaf tónskáldinu Ysaÿe og konunni hans þessa sónötu í brúðargjöf. Ysaÿe rétt æfði hana á brúðkaupsdaginn og spilaði sjálfur í brúðkaupinu en hinn formlegi frumflutningur var nokkrum mánuðum seinna.“ Rut segir þau Richard Simm hafa spilað þetta allt áður. „En mig langaði að tengja þessi tónskáld saman núna og tel þau verk sem við völdum vera skemmtilegt prógramm að bjóða upp á.“
Menning Mest lesið Lífið tók kollsteypu eftir ævintýralega Íslandsför Lífið Einhleypa mánaðarins: „Fullkomin, fullkomin, fullkomin“ Makamál Sautján tíma ferðalag með krefjandi Steinda framundan Lífið „Þetta er enginn helvítis félagskvíði, það bara þolir mig enginn“ Áskorun Mikil fagnaðarlæti vegna hænu í Hveragerði Lífið Erpur genginn út Lífið Lana Del Rey og krókódílamaður vekja athygli Lífið „Fína konan“ skyndilega umkringd fyllibyttum Lífið „Mann- og listfjandsamleg þvæla“ Menning „Tökum oft upp næturnar okkar á hljóðupptöku“ Makamál Fleiri fréttir „Mann- og listfjandsamleg þvæla“ Salman Rushdie hlýtur verðlaun Halldórs Laxness Þarf ekkert að þvælast fyrir sjálfri sér „Smá eins og maður sé allsber fyrir framan alþjóð“ Forstöðumaðurinn fannst í Salnum Óður til kvenlíkamans í öllu sínu veldi Óli Egils snýr sér að Ladda eftir Bubba Snæbjörn nýr leikhússtjóri í Tjarnarbíói Sjá meira