Eignir Azazo kyrrsettar og fyrirtækið í gjörgæslu Haraldur Guðmundsson skrifar 28. september 2017 07:00 Brynja Guðmundsdóttir hafnar öllum ásökunum stjórnar Azazo og segir uppsögn sína ólögmæta. Vísir/GVA
Hugbúnaðarfyrirtækið Azazo, sem er meðal annars í eigu lífeyrissjóða og áhættufjárfestingarsjóðs í eigu íslenska ríkisins, rambar á barmi gjaldþrots. Eignir þess hafa verið kyrrsettar að beiðni fyrrverandi forstjóra og stofnanda Azazo sem hefur stefnt félaginu fyrir dómstóla eftir að ráðningarsamningi hennar var rift í kjölfar mikilla deilna á milli hennar og stjórnarmanna. „Félagið stendur mjög illa. Þetta er löng saga í samskiptum á milli stofnanda og stjórnar í gegnum tíðina sem hefur ekki gengið átakalaust fyrir sig,“ segir Friðrik Friðriksson, stjórnarformaður Azazo og fulltrúi Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins (NSA), áhættufjárfestingarsjóðs í eigu íslenska ríkisins, í stjórn fyrirtækisins. Ráðningarsamningi Brynju Guðmundsdóttur, stofnanda Azazo og næststærsta hluthafa, var rift 6. júlí síðastliðinn og henni samstundis fylgt út úr húsakynnum fyrirtækisins í Hafnarfirði. Velta Azazo á fyrri helmingi ársins hafði þá lækkað um 33 prósent samanborið við sama tímabil í fyrra og fjárhagsstaðan versnað umtalsvert. Fyrirtækið var rekið með 633 milljóna króna tapi í fyrra en hagnaðist um 221 milljón árið 2015. Tapið í fyrra má að mestu leyti rekja til samdráttar í tekjum, hækkunar launa- og annars rekstrarkostnaðar, en aðallega þess að óefnislegar eignir rýrnuðu í virði um 565 milljónir. Var þar um að ræða þróunarkostnað við hugbúnaðinn CoreData sem var færður niður eftir að fyrirtækið missti einn sinn stærsta viðskiptavin, slitastjórn Glitnis, síðar Glitnir HoldCo, um mitt þetta ár. Samkvæmt ársreikningi Azazo fyrir 2016 stóð sala á þjónustu til Glitnis undir um helmingi af heildarveltu árin 2015 og 2016.Höfuðstöðvar Azazo í Bæjarhrauni í Hafnarfirði.Skuldsetti sig í botn til að bjarga fyrirtækinu Samkvæmt Brynju, sem stofnaði Azazo fyrir tíu árum, hafði samstarf hennar og stjórnarmanna fyrirtækisins gengið illa allt frá hausti 2014. Hún hafi farið fram á kyrrsetningu eigna þess þann 14. september, sex dögum fyrir aðalfund, vegna launakröfu sem hún eigi upp á 65 milljónir króna. Kyrrsetningunni verði ekki aflétt á meðan engin svör fáist varðandi kröfuna. „Það voru samskiptaörðugleikar og trúnaðarbrestur en ég var með bundinn ráðningarsamning til 31. ágúst 2018. Hann var svo staðfestur af stjórn í desember í fyrra eftir að ég gaf eftir launakröfu sem ég átti á fyrirtækið. Ég er eini hluthafinn með ábyrgðir, það er að segja í ábyrgð fyrir yfirdráttarskuld fyrirtækisins, og ég er búin að reyna ítrekað síðustu ár að fá stjórnina til að losa mig undan henni eða að aðrir hluthafar beri þær byrðar með mér. Þegar samningnum var rift fékk ég ekki greitt uppsafnað orlof eða þá daga sem ég hafði unnið í júlí. Ég tók tugi milljóna króna í lán og setti inn í fyrirtækið, og skuldsetti mig í botn til að bjarga því, og hef hafnað öllum ásökunum stjórnarinnar og tel uppsögnina ólögmæta,“ segir Brynja. Núverandi stjórn Azazo var kjörin á hluthafafundi félagsins þann 27. júlí síðastliðinn áður en aðalfundur var haldinn 20. september. NSA á 17,1 prósents hlut í fyrirtækinu og Core Invest, félag Brynju, fjórtán prósent. Auður 1 fagfjárfestasjóður, í eigu lífeyrissjóða og fagfjárfesta, á 13,9 prósent en samtals eru hluthafar 43 talsins. Í þeim hópi eru einnig núverandi eða fyrrverandi starfsmenn Azazo en fyrirtækið hefur undanfarna mánuði þurft að ráðast í uppsagnir í ljósi stöðunnar. Hefur starfsmannafjöldinn af þeim sökum farið úr um fimmtíu niður í um tuttugu. Starfsfólk hefur verið upplýst um stöðuna og var hlutafé fyrirtækisins í síðustu viku lækkað úr 60 milljónum að nafnvirði í fjórar. Stjórn Azazo telur Brynju hafa haldið eftir upplýsingum um fjárhagsstöðu fyrirtækisins og fegrað bókhald þess. Ákvörðun hennar um að fara fram á kyrrsetningu eigna hafi síðan fælt í burtu fjárfesta sem hafi verið tilbúnir til að leggja fjármagn inn í félagið. „Við tökum við sem funkerandi starfsstjórn yfir fyrirtæki sem stendur ekki vel. Við erum með fyrirtækið í gjörgæslu en það er erfitt fyrir okkur að fara út í smáatriðin,“ segir Friðrik. Á hluthafafundinum 27. júlí var samþykkt að gefa út skuldabréf fyrir allt að 100 milljónum króna í þeim tilgangi að styrkja fjárhag Azazo og treysta rekstrarhæfi. Skuldabréfaútgáfan stendur að sögn Friðriks enn yfir og gengur þokkalega. Aftur á móti þarf hún að klárast fyrir októberlok ef fyrirtækið á að ná að standa við sínar lágmarks skuldbindingar. „Þegar hluthafafundurinn var haldinn í júlí var félagið komið í strand. Menn hafa verið að rifa seglin þannig starfsfólki fækkar um hver mánaðamót,“ segir Friðrik og svarar að NSA hafi ekki tekið ákvörðun um hvort sjóðurinn muni fjárfesta frekar í Azazo. Hann hafi ekki á reiðum höndum hversu mikla fjármuni NSA hefur sett inn í fyrirtækið.Ólöglega boðað til fundarins „Ég vil meina að þessi hluthafafundur í júlí hafi verið ólöglega boðaður og þar var kjörin ný stjórn. Þar var mér úthúðað og stjórnin þóttist koma af fjöllum eins og þau vissu ekki hver staðan væri á fyrirtækinu. Á aðalfundi félagsins í síðustu viku, eftir að ég kyrrsetti eigur félagsins, var ég sökuð um að ég væri búin að „fiffa“ bókhaldið með Deloitte í fjöldamörg ár þar sem hugbúnaðurinn var eignfærður. Mér finnst þessar aðgerðir gegn mér mjög grófar enda vita allir sem hafa farið í gegnum alþjóðlega endurskoðun að þetta eru fáránlegar ásakanir. Ég er ekki hafin yfir það að missa vinnuna en þarna er að baki löng saga og án þess að það hafi verið reynt að setjast niður og ná sáttum af einlægni,“ segir Brynja og bætir við að hún skrifi nú bók og kvikmyndahandrit um starfsferil sinn hjá Azazo. „Ég tel þetta ósanngjarnt og ekki einungis gegn mér heldur öllum hluthöfum. Það hefur fullt af starfsmönnum sett peninga í hlutafé sem eiga nú á hættu að missa það ef félagið fer í þrot eða ef þeir þynnast út í skuldabréfaútgáfunni. Ég er stolt af Azazo, lausnum þess og starfsfólki. Ég vil að fyrirtækið lifi þessar hremmingar af og haldi áfram að blómstra.“ Brynja segir að persónuverndarlög hafi einnig verið brotin þar sem hún hafi ekki enn fengið einkagögn sem voru á skrifstofu hennar og vinnutölvu. Launakrafan upp á 65 milljónir eigi að fara í að borga þau lán sem hún tók til að stofna og halda rekstri fyrirtækisins gangandi. „Í lok síðasta árs gerði ég skriflegt samkomulag við þáverandi stjórn þar sem hún ábyrgðist að losa mig undan ábyrgðum í síðasta lagi fyrir 1. september síðastliðinn. Ekki var staðið við þetta samkomulag og mun ég skoða réttarstöðu mína varðandi það og mögulega stefna fyrirtækinu og skoða það að sækja þessa stjórnarmenn beint til saka persónulega vegna þessa brots.“
Mest lesið Jón segir bull að FBI-kempa hafi óvænt bankað upp á með stefnu Viðskipti innlent Veiðir hrefnu í sumar og selur kjötið á Íslandi Viðskipti innlent Fokdýr dómsmál tjónka ekki við ÁTVR Viðskipti innlent Semja við Ístak um gerð mannvirkja fyrir fyrsta vindorkuver landsins Viðskipti innlent Hressilega kaótískir morgnar sem eiga það til að klikka smá Atvinnulíf Starfsfólk truflað á tveggja mínútna fresti Atvinnulíf Pizzur í stað smurbrauðs á nýrri Króníku Viðskipti innlent Gefur eftir í tollastríði við Kína Viðskipti erlent Notendur þurfi að bregðast við vilji þeir ekki að gögn verði notuð Viðskipti erlent Frumkvöðlar í áratugi: „Launalaus sjálfboðavinna fyrstu árin“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Fokdýr dómsmál tjónka ekki við ÁTVR Veiðir hrefnu í sumar og selur kjötið á Íslandi Semja við Ístak um gerð mannvirkja fyrir fyrsta vindorkuver landsins Jón segir bull að FBI-kempa hafi óvænt bankað upp á með stefnu Ekki má vanmeta áhrifin af tollastríði á íslensk fyrirtæki Pizzur í stað smurbrauðs á nýrri Króníku Fjármögnun tryggð fyrir nýrri landeldisstöð Samherja Umræðan einkennist af rangfærslum um ofurhagnað Kaupsamningur undirritaður um Grósku Ísfélagið greiðir út tveggja milljarða arð Breyta Kaffi Kjós í íbúðarhús Reynst betur að kaupa fasteign en hlutabréf Nova eignast tuttugu prósenta hlut í Dineout Munu opna tvö Starbucks-kaffihús í miðborginni Nýjar íbúðir seljast verr en aðrar vegna stærðar Bærinn vildi húsið en þurfti svo að borga tvöfalt meira Aðalgeir frá Lucinity til Símans Latabæjarnammið vel þekkt um allan heim Ölgerðin ræður tvo markaðsstjóra Íslenskur kauphallarsjóður á markað í Bandaríkjunum Ekkert samtal í gangi milli stjórnvalda og sjávarútvegs VÍS opnar aftur skrifstofu á Akranesi KS fyrstir til að nýta sér nýja varaleið um gervihnetti Jón Guðni tekur við formennsku Algengast að óljósar starfslýsingar valdi togstreitu og gremju Sigurjón Örn tekur við af Sveini hjá Kletti „Þar skeikar milljörðum í vanmati ráðuneytisins“ Hætta við flug til Madeira, Pula, Düsseldorf og Hamborgar Allri stjórn Landsvirkjunar skipt út Um 80 prósent vilja að gjöld útgerða taki mið af raunverulegu aflaverðmæti Sjá meira