Sigurmark á ögurstundu gegn 10 mönnum Brighton Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 10. nóvember 2018 14:30 Það sást langar leiðir hversu miklu máli sigurinn skipti heimamenn. vísir/getty Souleymane Bamba tryggði Cardiff sigur gegn 10 mönnum Brighton á lokamínútu venjulegs leiktíma í Cardiff í dag. Sigurinn var gríðarlega mikilvægur fyrir Cardiff sem lyfti sér upp úr fallsæti í ensku úrvalsdeildinni. Gestirnir í Brighton fengu frábæra byrjun á leiknum þegar fyrirliðinn Lewis Dunk skoraði eftir aðeins sex mínútna leik. Bamba gaf aukaspyrnu fyrir utan teig og hleypti Dunk svo framhjá sér á fjærstönginni, grænklæddi varnarmaðurinn lét svo gott færi ekki forgörðum fara og skoraði af öryggi. Ástandið átti hins vegar eftir að versna til muna fyrir gestina. Á 28. mínútu leiksins jafnaði Callum Paterson eftir frábæran sprett frá Kadeem Harris. Sex mínútum seinna var Dale Stephens rekinn af velli. Stephens fór með takkana á undan sér, hátt á lofti, í tæklingu á Greg Cunningham og fékk réttilega að líta rauða spjaldið. Gestirnir voru því manni færri næsta klukkutímann.Stephens fékk rauða spjaldið eftir hálftíma leikvísir/gettySeinni hálfleikurinn byrjaði mjög rólega, heimamenn voru með nær einokun á boltanum en gerðu lítið við hann. Harris átti frábært færi á 59. mínútu þegar glæsilegt skot hans fór í slána. Undir lok leiksins varð meira um færi þar sem bæði lið leituðu að sigurmarkinu. Neil Etheridge hafði vart snert boltann í marki Cardiff í seinni hálflei en þurfti að taka á honum stóra sínum til að neita Jose Izquierdo um sigurmark á 82. mínútu. Það var svo á lokamínútu venjulegs leiktíma eftir langt innkast Arons Einars Gunnarssonar að Cardiff skoraði sigurmarkið. Bamba reyndi bakfallsspyrnu sem fór í stöngina, Paterson átti skot í slána áður en Bamba fékk boltann aftur og hamraði boltann í þaknetið. Langþráður sigur Cardiff í höfn og var honum eðlilega fagnað ógurlega af leikmönnum, starfsfólki og stuðningsmönnum á Cardiff City leikvanginum. Cardiff fer, í það minnsta tímabundið, upp úr fallsæti. Brighton situr enn um miðja deild. Enski boltinn
Uppgjörið og viðtöl: ÍA - Víkingur 3-4 | Danijel Dejan Djuric tryggði Víkingi dramatískan sigur Íslenski boltinn
Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 2-1 | Draumaúrslitaleikurinn verður að veruleika Íslenski boltinn
Uppgjörið og viðtöl: ÍA - Víkingur 3-4 | Danijel Dejan Djuric tryggði Víkingi dramatískan sigur Íslenski boltinn
Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 2-1 | Draumaúrslitaleikurinn verður að veruleika Íslenski boltinn