Neymar allt í öllu þegar Brasilíumenn slógu út Mexíkóa Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. júlí 2018 15:45 Neymar og Paulinho fagna. Vísir/Getty Brasilíumenn eru komnir í átta liða úrslitin á HM í fótbolta í Rússlandi eftir 2-0 sigur á Mexíkó í fyrri leik dagsins í sextán liða úrslitum keppninnar. Mörk Brasilíumanna skoruðu Neymar og Roberto Firmino en Liverpool maðurinn innsiglaði sigurinn skömmu eftir að hann hafði komið inná sem varamaður. Mexíkómenn þurfa því enn á ný að sætta sig við að detta út í sextán liða úrslitum á HM. Það er þeirra hlutskipti á sjöundu heimsmeistarakeppninni í röð. Þetta er aftur á móti sjöunda heimsmeistaramótið í röð þar sem Brasilíumenn verða með í átta liða úrslitunum. Brasilíska liðið lítur líka mjög vel út. Þeir eru eins og oft áður með frábæra menn í sókninni til að gera út um leikina en grunnurinn að liðinu er traustur og þéttur varnarleikur sem gefur andstæðingum þeirra fá góð færi. Neymar bauð upp á sína vanalegu sýningu, frábær tilþrif í bland við ótrúlegan leikaraskap. Hann skoraði fyrra markið úr sókn sem hann bjó til sjálfur og seinna markið kom síðan eftir skot frá honum. Guillermo Ochoa stóð sig frábærlega í marki Mexíkó en hann gat ekki komið í veg fyrir mörkin.https://twitter.com/BBCMOTD/status/1013812828115959812https://twitter.com/BBCMOTD/status/10138128281159598121994: Last-16 1998: Last-16 2002: Last-16 2006: Last-16 2010: Last-16 2014: Last-16 2018: Last-16 The #WorldCup last-16 curse continues for #MEX, this time falling at the hands of #BRApic.twitter.com/3N3ZEPh5bv — Match of the Day (@BBCMOTD) July 2, 2018 Mexíkóar byrjuðu leikinn mjög vel og voru nálægt því að galopna brasilísku vörnina á fyrstu tuttugu mínútunum. Brasilíumenn tóku þá öll völd á vellinum og fengu fjölda færa fram að hálfleik. Guillermo Ochoa varði þá vel og tókst að halda hreinu fram að leikhlé. Stórsókn Brasilíumanna hélt áfram í seinni hálfleik og fyrsta markið kom svo á 51. mínútu. Neymar skoraði þá af stuttu færi eftir sendingu frá Willian en frábær hælspyrna hafði komið Willan af stað inn í teig. Brasilíumenn fengu færi til að bæta við mörkum en seinna markið kom þó ekki fyrr en á 88. mínútu. Það skoraði Roberto Firmino tveimur mínútum eftir að hann kom inná sem varamaður. HM 2018 í Rússlandi
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti