Tottenham kláraði lánlaust lið Southampton Anton Ingi Leifsson skrifar 5. desember 2018 21:45 Kane fagnar marki sínu. vísir/getty Tottenham lenti í engum vandræðum með stjóralausa Southampton-menn á Wembley í kvöld en Tottenham vann 3-1 sigur. Harry Kane kom Tottenham yfir á níundu mínútu leiksins og ekki voru fleiri mörk skoruð í fyrri hálfleiknum. Í síðari hálfleik skoruðu heimamenn tvö mörk en Lucas Moura kom þeim í 2-0 á 51. mínútu og fjórum mínútum síðar var það Son Heung-min sem afgreiddi leikinn. Charlie Austin minnkaði þó muninn fyrir Southampton í uppbótartímanum en nær komust þeir ekki. Ralph Hasenhuttl var ráðinn stjóri Southampton í dag en hann var ekki á hliðarlínunni í kvöld. Hann verður á bekknum í næsta leik Southampton sem er í átjánda sætinu. Tottenham er hins vegar í fimmta sætinu með 30 stig, stigi á eftir Chelsea sem er í þriðja sætinu. Þar er því rosaleg barátta framundan um topp fjögur sætin. Enski boltinn
Uppgjörið og viðtöl: ÍA - Víkingur 3-4 | Danijel Dejan Djuric tryggði Víkingi dramatískan sigur Íslenski boltinn
Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 2-1 | Draumaúrslitaleikurinn verður að veruleika Íslenski boltinn
Uppgjörið og viðtöl: ÍA - Víkingur 3-4 | Danijel Dejan Djuric tryggði Víkingi dramatískan sigur Íslenski boltinn
Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 2-1 | Draumaúrslitaleikurinn verður að veruleika Íslenski boltinn