Lífið

Óskar og Telma fyrsta parið úr leik í Allir geta dansað

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Óskar og Telma eru á heimleið.
Óskar og Telma eru á heimleið. Vísir
Óskar Jónasson og Telma Rut Sigurðardóttir þurftu að sætta sig við það að vera fyrsta parið sem er úr leik í skemmtiþættinum Allir geta dansað sem hóf göngu sína á Stöð 2 á sunnudagskvöldið síðasta.

Í þætti kvöldsins var í fyrsta sinn kosið á milli paranna og hlutu Óskar og Telma minnsta stigafjölda en samanlögð stig dómnefndar og atkvæðafjöldi frá þjóðinni eru lögð saman.

Í fyrsta þættinum dönsuðu þau Rhumba og fór Óskar fljótlega í kunnuglegan karakter þegar áhorfendur Stöðvar 2 sáu Skara Skrípó á sviðinu. Í þætti kvöldsins dönsuðu þau vals undir fögrum tónum bresku tónlistarkonunnar Adele.

Í þáttunum keppa tíu þjóðþekktir Íslendingar í dansi en þeir eru paraðir saman við tíu fagdansara og eitt par stendur uppi sem sigurvegari.


Tengdar fréttir

Óskar breyttist í Skara Skrípó á dansgólfinu

Óskar Jónasson og Telma Rut Sigurðardóttir taka saman þátt í raunveruleikaþættinum Allir geta dansað sem hóf göngu sína á Stöð 2 á sunnudagskvöldið síðasta.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.