Björgunarsveitarmenn í Öræfum fundu, um hádegisbil, látinn mann við Sandfell í Öræfum.
Björgunarsveitir voru kallaðar til þegar farið var að grenslast fyrir um ástæður þess að bifreið hafði staðið mannlaus í ótiltekin tíma á bifreiðastæði skammt frá Sandfelli, að því er segir í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi.
Um er að ræða bílaleigubifreið í útleigu til erlends ferðamanns.
Í samtali við Vísi segir Oddur Árnason, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Suðurlandi, að starfsmaður bílaleigunnar sem leigði bílinn hafi haft samband við lögreglu eftir að bílaleigunni barst ábending um að bíllinn hafi staðið á bílastæðinu í einhvern tíma.
Ekki er vitað hvað bíllinn stóð lengi á bílastæðinu en málið er í rannsókn hjá rannsóknardeild lögreglunnar á Suðurlandi.
Innlent