Stjórn Hörpu lækkar laun forstjórans og leiðréttir kjör þjónustufulltrúa

Í tilkynningu frá stjórn Hörpu kemur fram að forstjóri hafi kynnt ákvörðun sína um að greiða þjónustufulltrúum tímakaup sem taki í meginatriðum mið af þeim samningum sem voru í gildi á síðasta ári.
„Þannig er komið til móts við gagnrýni meðal þeirra um kjarabreytingar í tengslum við rekstrarhagræðingu í Hörpu. Breytingin tekur gildi 1. júní n.k. og verður tímakaup þá 26,1% yfir taxta stéttarfélags eða að meðaltali 2.935 kr á klst. í eftirvinnu en 85% vinnustunda þjónustufulltrúa eru á kvöldin og um helgar. Þessar breytingar hafa verið kynntar á fundi með þjónustufulltrúum,“ segir í yfirlýsingunni.
Hópur þjónustufulltrúa í Hörpu sagði upp störfum eftir að í ljós kom að laun Svanhildar Konráðsdóttur forstjóra voru hækkuð í fyrra þegar kjör hans féllu ekki lengur undir úrskurði kjararáðs á sama tíma og þjónustufulltrúunum var gert að taka á sig kjaraskerðingu. Nokkrar deilur sköpuðust um þessar ákvarðanir stjórnenda Hörpu. Verkalýðsfélagið VR hætti til dæmis viðskiptum við tónlistar- og ráðstefnuhúsið í kjölfarið.
Stjórnin samþykkti jafnframt í dag ósk Svanhildar um að laun hennar yrðu lækkuð úr þeirri upphæð sem hún samdi um þegar hún var ráðin þannig að þau verði í samræmi við úrskurð kjararáðs sem var gefinn út eftir að hún var ráðin. Lækkunin tekur gildi um mánaðamótin.
Eins var samþykkt að falla frá 8% hækkun stjórnarlauna sem stjórnin samþykkti á aðalfundi 26. apríl. Laun stjórnarmanna hafa þá verið óbreytt frá árinu 2013.
Stjórnin samþykkti einnig tillögu forstjóra um að utanaðkomandi fagaðili geri markaðslaunagreiningu á kjörum þjónustufulltrúa Hörpu sem starfa í hlutastarfi við viðburði þar sem kjör þeirra verða m.a. borin saman við sambærileg störf annars staðar. Leitað hefur verið til ráðgjafarfyrirtækisins Attentus mannauður og ráðgjöf ehf. um að annast verkið.
Tengdar fréttir

Svanhildur vill að laun hennar verði lækkuð
Segir frið um Hörpu ofar öllu.

Laun stjórnar Hörpu voru hækkuð
Eigendur Hörpu samþykktu að hækka laun stjórnarmanna um 7.500 krónur á mánuði á aðalfundi fyrir tveimur vikum. Þetta var fyrsta launahækkun stjórnarmanna í fimm ár.

VR hættir viðskiptum við Hörpu
Stéttarfélagið VR hefur ákveðið að hætta að nota Hörpu tónlistarhús undir viðburði félagsins. Ákvörðunin er tekin í ljósi yfirýsingar forstjóra Hörpu sem send var út í dag. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá VR.

Harpa kveður þjónustufulltrúa sína og óskar þeim góðs gengis
Svanhildur Konráðsdóttir segir ekki rétt að laun sín hafi hækkað um 20 prósent.

Starfsmönnum Hörpu var gert að samþykkja launalækkun
Reiði er meðal starfsmanna Hörpu vegna launahækkunar forstjóra í fyrra. Þjónustufulltrúar þurftu að taka á sig verulega launalækkun í lok síðasta árs vegna slæmrar stöðu félagsins. Leituðu til lögfræðinga VR vegna þessa. Þjónustufulltrúinn Örvar Blær Guðmundsson sagði upp í gær eftir að hafa lesið frétt Fréttablaðsins.

Tuttugu þjónustufulltrúar Hörpu sögðu upp störfum eftir fund með forstjóra
Tuttugu þjónustufulltrúar sem starfa í tónlistar-og menningarhúsinu Hörpu í Reykjavík sögðu upp störfum í dag eftir að hafa átt fund með Svanhildi Konráðsdóttur, forstjóra hússins.

Ætla að hætta við launahækkun stjórnarmanna Hörpu
Þórður Sverrisson, stjórnarformaður Hörpu, hyggst leggja það til við stjórn félagsins að hætt verði við fyrirhugaðar hækkanir á stjórnarlaunum stjórnarmanna.

Formaður VR og forstjóri Hörpu funda: „Jákvætt þegar fólk sest niður og talar saman“
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, hefur tekið boði Svanhildar Konráðsdóttur, forstjóra um fund í næstu viku.