Kínverskir ríkismiðlar hrósa nú Theresu May, forsætisráðherra Bretlands, í hástert og kalla hana raunsæja, en hún hefur verið í opinberri heimsókn í í Alþýðulýðveldinu síðustu daga.
Leiðari dagblaðsins Global Times segir að May hafi af miklu hyggjuviti ákveðið að sneiða hjá því að tala um viðkvæm mál á borð við mannréttindi borgaranna eða stöðu Hong Kong.
Breska blaðið Guardian greinir frá málinu. Þar segir enn fremur að May hafi þess í stað sóst eftir raunsæju viðskiptasamstarfi á milli Bretlands og Kína sem er næststærsta efnahagsveldi heims. May hefur meðal annars talað fyrir því að Bretar og Kínverjar semji um fríverslun í tengslum við útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu.
Heimafyrir hefur May hins vegar verið gagnrýnd fyrir að minnast lítið sem ekkert á mannréttindamál í ferð sinni.
Þriggja daga heimsókn May til Kína lauk í gær.
Kínverjar hrósa May fyrir að minnast ekki á mannréttindamál

Tengdar fréttir

Bretar standi verr sama hvernig Brexit sé háttað
Ný skýrsla sem lekið var til BuzzFeed sýnir að útgangan úr Evrópusambandinu muni hafa neikvæð áhrif á breska hagkerfið, sama hvað. Stjórnarandstæðingar skjóta föstum skotum á ríkisstjórnina.

May vill semja um fríverslun við Kína
Forsætisráðherra Bretlands er nú í þriggja daga heimsókn í Kína.