Menning

Blása dönsku lífi í norrænu goðin með Einari Kára

Magnús Guðmundsson skrifar
Stórsveit Reykjavíkur klár í afmælistónleikana.
Stórsveit Reykjavíkur klár í afmælistónleikana.
Stórsveit Reykjavíkur heldur tónleika í Silfurbergi, Hörpu, í dag kl. 16. Flutt verður verkið Ferðin til Valhallar eftir danska tónskáldið, stjórnandann og básúnuleikarann Steen Hansen.

Sigurður Flosason, forsvarsmaður Stórsveitarinnar, segir að það sé mikill fengur í komu Steens.

„Þetta er áhugaverður höfundur og einn af fremstu básúnuleikurum Dana um áraraðir. Maður sem starfaði lengi vel í hinni virtu Stórsveit danska ríkisútvarpsins í Kaupmannahöfn, Danmarks Radio Big Band, og stjórnaði hljómsveitinni oft.“

Verkið sem sveitin ætlar að flytja undir stjórn Steens Hansen er í níu þáttum þar sem segir í kynngimögnuðum tónum frá helstu persónum hinnar norrænu goðafræði; Óðni, Þór, Loka, Freyju og fleirum.

„Þetta stendur okkur Íslendingum nærri og Steen er svona að leitast við að draga fram persónuleika guðanna í hverjum kafla fyrir sig. Punkturinn yfir i-ið er svo að kynnir og sögumaður á tónleikunum verður Einar Kárason og hann ætlar að segja frá þessum góðu guðum. Þegar Einar talar um guðina þá verðum við öll áheyrendur og við hlökkum til að heyra það sem hann hefur að segja.“

Sigurður segir að það sé heillandi hversu fjölbreytt þessi tónlist er.

„Þessi tónlist fer mjög víða. Er bæði aðgengileg og notaleg en svo er hún líka framsækin og hress. Þetta er málað í fjölbreytilegum litum.“

Þess má geta að tónleikarnir fara fram á afmælisdegi Stórsveitarinnar en hún fagnar 27 ára afmæli í dag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.