Elín Sigríður og Inga Kristín hlutu Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands Atli Ísleifsson skrifar 1. febrúar 2018 15:31 Verðlaunahafarnir ásamt Guðna Th. Jóhannessyni forseta. Rannís
Elín Sigríður Harðardóttir og Inga Kristín Guðlaugsdóttir, nemendur í grunnnámi vöruhönnunar við Listaháskóla Íslands, hlutu Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands fyrr í dag. Þær hlutu verðlaunin fyrir verkefnið Lúpína í nýju ljósi, lífrænt hráefni í umhverfisvæna afurð.Í tilkynningu frá Rannís kemur fram að leiðbeinendur þeirra hafi verið þeir Magnús H. Jóhannsson, sviðsstjóri þróunarsviðs Landgræðslu ríkisins, og Thomas Pausz, lektor við Listaháskóla Íslands. „Í verðlaunaverkefninu voru kannaðir eiginleikar og styrkleikar lúpínunnar sem hráefnis. Markmið rannsóknarinnar var að komast að því hvort hægt væri að vinna efni úr lúpínu án allra íblöndunarefna, sem væri þá algjörlega niðurbrjótanlegt í náttúrunni. Efni sem væri nýtanlegt í einhverskonar áframhaldandi framleiðslu. Megintilraunirnar í verkefninu voru að pressa plötur úr rótum og stönglum plöntunnar og gera samanburð á afurðunum, annars vegar á plöntuhlutum og hins vegar á mismunandi vaxtarskeiði hennar. Sýnishorn voru unnin með það að markmiði að gera styrkleikaprófanir svo hægt væri að kanna styrk efnisins og áætla hvort og þá hvar hægt væri að staðsetja það í flokki byggingarefna, miðað við þá vinnsluaðferð sem notuð var í rannsókninni. Gerð voru beygjubrotþolspróf og metin orkuþörf við framleiðslu á efninu. Að auki voru gerðar tilraunir með aðra plöntuhluta, s.s. blómin. Náttúrutrefjar eru hráefni sem vonir eru bundnar við í þróun á umhverfisvænum efnum, hráefni sem gæti komið í stað plasts og gerviefna sem hafa verið notuð undanfarna áratugi og stofna náttúrunni í hættu. Alaskalúpína er belgjurt sem hefur mikinn lífmassa og finnst víða í náttúru Íslands. Hún er áhugaverð vegna eiginleika sinna til að framleiða nitur, þannig sér hún sjálfri sér fyrir næringu og er þar af leiðandi sjálfbær þegar hún hefur fest rætur. Plantan hefur nær eingöngu verið notuð sem uppgræðslujurt. Stofnuð var vefsíða sem fjallar um verkefnið á myndrænan hátt. Vefslóð hennar er www.lupineproject.com.Frá afhendingu verðlaunanna á Bessastöðum fyrr í dag.RannísFjögur önnur verkefni fengu sérstaka viðurkenningu:Notkun hágæðaloftmynda frá flygildum við vistfræðirannsóknir Verkefnið var unnið af Benedikt Traustasyni og Hlyni Steinssyni, BS-nemum í líffræði við Háskóla Íslands, í samstarfi við sprotafyrirtækið Svarma ehf. Leiðbeinendur voru Kristín Svavarsdóttir plöntuvistfræðingur, Þóra Ellen Þórhallsdóttir, prófessor við Háskóla Íslands, og Victor Madrigal sérfræðingur í fjarkönnun.Reikningar á brothættu beina hjá sjúklingum sem eru að gangast undir heildar mjaðmaskiptaaðgerð Verkefnið var unnið af Gunnari Hákoni Karlssyni og Halldóri Ásgeiri Risten Svanssyni, nemum í heilbrigðisverkfræði við Háskólann í Reykjavík. Leiðbeinendur voru Paolo Gargiulo, dósent við tækni- og verkfræðideild Háskólans í Reykjavík, Magnús Kjartan Gíslason, lektor við tækni- og verkfræðideild Háskólans í Reykjavík, Kyle Edmunds, aðjúnkt við tækni- og verkfræðideild Háskólans í Reykjavík, Halldór Jónsson Jr., prófessor við læknadeild Háskóla Íslands og bæklunarlæknir við Landspítala háskólasjúkrahús.Trippi – Tveir ótamdir hönnuðir kanna nýtingarmöguleika íslenskra hrosshúða Verkefnið var unnið af fatahönnuðinum Kristínu Karlsdóttur og vöruhönnuðinum Valdísi Steinarsdóttur. Þær eru báðar nýútskrifaðar frá Listaháskóla Íslands. Umsjónarmenn verkefnisins voru Linda Björg Árnadóttir, lektor í fatahönnun við Listaháskóla Íslands, og Rúna Thors, fagstjóri í vöruhönnun við Listaháskóla Íslands.Þróun nýstárlegra vefjaræktunarkerfa til rannsókna á öndunarfærum og til lyfjarannsókna Verkefnið var unnið af Gabriel Sölva Windels, BSc nema í heilbrigðisverkfræði við Háskólann í Reykjavík. Aðalleiðbeinandi var Jennifer Ann Kricker, PhD og verkefnisstjóri læknadeildar Háskóla Íslands, og þar voru Sævar Ingþórsson frumulíffræðingur ásamt Ara Jóni Arasyni, PhD og verkefnisstjóra við Rannsóknarstofnun í stofnfrumufræðum, meðleiðbeinendur. Verkefnið var unnið á Rannsóknarstofu í stofnfrumufræðum við Lífvísindasetur Háskóla Íslands þar sem Þórarinn Guðjónsson hafði umsjón með verkefninu.Verðlaunin í árNýsköpunarverðlaun forseta Íslands eru veitt árlega þeim námsmönnum sem hafa unnið framúrskarandi starf við úrlausn verkefnis sem styrkt var af Nýsköpunarsjóði námsmanna sumarið áður. Verðlaunin voru fyrst veitt 1996 og eru því nú veitt í tuttugasta og þriðja sinn. Verðlaunin í ár eru ljósin Ból eftir leirlistarkonuna Kristbjörgu Guðmundsdóttur,“ segir í tilkynningunni.
Mest lesið Draumurinn að fríbúðir skjóti upp kollinum um alla borg Innlent Ísraelski herinn segir leiðtoga Hezbollah hafa fallið Erlent Brotthvarf Katrínar hafði mikil áhrif Innlent Orbán ber til baka ummæli ráðgjafa um uppgjöf fyrir Rússum Erlent Loftárásir á meint vopnabúr Hezbollah í Beirút Erlent Nýliðar hlakka til að láta að sér kveða: „Finnst vanta fólk eins og mig“ Innlent Líf segir söguna um stóladans Mörtu og Hildar dagsanna Innlent Mennirnir tveir fundnir Innlent Tugir látnir í fjórum ríkjum af völdum Helenar Erlent Listamaðurinn Jón Gnarr hættir og pólitíkusinn tekur við Innlent Fleiri fréttir Brotthvarf Katrínar hafði mikil áhrif Hafði „útdraganlega kylfu“ meðferðis Nýliðar hlakka til að láta að sér kveða: „Finnst vanta fólk eins og mig“ Draumurinn að fríbúðir skjóti upp kollinum um alla borg Ekki hægt að aldursskipta börnum á Stuðlum í miðjum stormi „Skítastaða“ á Stuðlum, vongóðir nýliðar og búð þar sem allt er ókeypis „Það verður að láta reyna á þessar kærur“ Listamaðurinn Jón Gnarr hættir og pólitíkusinn tekur við Líf segir söguna um stóladans Mörtu og Hildar dagsanna Hlaut varanlegan skaða vegna myglu en fær ekki krónu Marta hafnar því alfarið að hafa ítrekað sest í stól Hildar Unglingar á ofsahraða reyndu að stinga lögregluna af Mennirnir tveir fundnir Hólmfríður ætlar í ritara VG Til skoðunar að beita refsisköttum á nikótínpúða Malbika bílastæðin í Reynisfjöru Fluttur með þyrlu eftir bílveltu á Snæfellsnesi Ríkisstjórnin sameini það versta frá bæði vinstri og hægri „Íslenska vegakerfið er líklega hættulegasti ferðamannastaður landsins“ Starfshópur skipaður vegna slysa hjá ferðamönnum Veitingastaður ber ekki ábyrgð á hnefahöggi starfsmanns Má ekki eyða myndböndum sem mátti ekki taka Laxalúsin sækir í sig veðrið fyrir vestan Grunur um að fiskar úr landeldi hafi komist í sjó Færri ánægðir með Höllu en Guðna og Ólaf Ragnar Mættur í Samfylkinguna Sagður hafa nauðgað konu fyrir níu árum Ekkert gert til að gera nikótínpúða jafn óaðlaðandi og sígarettur Matvælastofnun kærði tvo búfjáreigendur til lögreglu Einn af 103 ökumönnum reyndist yfir mörkum Sjá meira