Tilnefningar til Maístjörnunnar vegna ljóðabókar útgefinnar 2017 voru kynntar við athöfn í Gunnarshúsi í dag. Tilnefnd eru Bergþóra Snæbjörnsdóttir fyrir Flórída, Elísabet Kristín Jökulsdóttir fyrir Dauðinn í veiðarfæraskúrnum, Eydís Blöndal fyrir Án tillits, Jónas Reynir Gunnarsson fyrir Stór olíuskip og Kristín Ómarsdóttir fyrir Kóngulær í sýningargluggum.
Tilnefndar bækur eru allar til sýnis í anddyri Þjóðarbókhlöðunnar. Gjaldgengar voru allar útgefnar íslenskar ljóðabækur ársins 2017 sem skilað var til Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns og fékk dómnefnd þær til umfjöllunar. Dómnefnd skipa Magnea J. Matthíasdóttir fyrir hönd Rithöfundasambandsins og Rannver H. Hannesson fyrir hönd Landsbókasafnsins.
„Verðlaunin verða veitt við athöfn í Þjóðarbókhlöðunni 18. maí, á degi ljóðsins. Verðlaunafé er 350 þúsund krónur. Maístjarnan er einu verðlaun á Íslandi sem veitt eru eingöngu fyrir útgefna íslenska ljóðabók. Verðlaununum er ætlað að hvetja skáld til að yrkja og koma ljóðum sínum í útgáfu,“ segir í frétt á vef Rithöfundasambands Íslands.
Tilnefningar til Maístjörnunnar kynntar

Tengdar fréttir

Án tillits til þöggunarsamfélagsins
Án tillits er ný ljóðabók eftir Eydísi Blöndal.

Galdurinn býr í orðunum sjálfum
"Eina lausnin við þessa martraðakennd sem lífið er, hlýtur að vera tenging við aðrar manneskjur“