Flugvirkjar Gæslunnar í verkfall ef samningar nást ekki í dag Gissur Sigurðsson skrifar 24. apríl 2018 10:28 Ein af þyrlum Landhelgisgæslunnar við Landspítalann. Flugvirkjar í áhöfnum þyrlanna, sem fara með í allar ferðir, mega ekki fara í verkfall, en það mega þeir sem vinna á jörðu niðri. Vísir/Jóhann K. Jóhannsson
Ótímabundin vinnustöðvun flugvirkja hjá Landhelgisgæslunni hefst klukkan hálf átta í fyrramálið ef ekki semst fyrir þann tíma. Reynt verður til þrautar að ná samkomulagi á fundi sem hefst klukkan eitt eftir hádegi, en talsvert mun bera í milli. Samningafundur flugvirkja og ríkisins hjá Ríkissáttasemjara í gær bar ekki árangur og því var boðað til fundarins í dag. Ef ekki semst í dag mun vinnustöðvunin fljótlega hafa truflandi áhrif á flugstarfssemi Gæslunnar, að sögn yfirmanna þar á bæ. Ekki fæst upp gefið hverjar kröfur flugvirkjanna eru, en þeir hafa að jafnaði miðað sig við flugvirkkja hjá Icelandair, en nýlega var samið við þá um átta prósenta hækkun auk einhverra aukakjara. Flugvirkjar í áhöfnum þyrlanna, sem fara með í allar ferðir, mega ekki fara í verkfall, en það mega þeir sem vinna á jörðu niðri. Það er hins vegar mat stjórnenda Gæslunnar að þrátt fyrir það muni verkfallið, ef til kemur, mjög fljótlega fara að hafa truflandi áhrif á flugreksturinn. Hátt í tuttugu flugvirkjar vinna hjá Gæslunni.
Mest lesið Fundu gríðarlegt magn fíkniefna í skrifstofuhúsnæði í Kópavogi Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Danska leiðin vekur lukku meðal bakhjarla Úkraínu Erlent Allt á suðupunkti í Þorlákshöfn vegna kosninganna Innlent Sauð upp úr í morgunumferðinni Innlent Settu bílslys á svið Innlent Mega lækka lífeyrisgreiðslur mismikið eftir aldri Innlent Ríkar kröfur gerðar í nýrri auglýsingu um sendiherraembætti Innlent Aðhafast ekkert vegna leyniupptakanna Innlent Segir „taugaveikluðum“ Framsóknarmönnum að róa sig Innlent Fleiri fréttir Kannast ekki við áform um brjóstmynd úr bronsi Krefjast úrbóta á leikskólastarfi í leikskólanum Lundi Gasmengun gæti náð á höfuðborgarsvæðið Skyndimóttaka myndi ekki leysa vanda Landspítalans Alls 70 prósent grunnskóla í Reykjavík símalausir Mega lækka lífeyrisgreiðslur mismikið eftir aldri Aðhafast ekkert vegna leyniupptakanna Segist sækja fé í aukafjárveitingu vegna inngildingar Læknar á lokasprettinum í kjaraviðræðum Tvær sviðsmyndir á kjördag Alls 914 umsóknir um uppkaup í Grindavík samþykktar Iðgjöld til NTÍ munu hækka um fimmtíu prósent Allt á suðupunkti í Þorlákshöfn vegna kosninganna Veðrið gæti sett strik í reikninginn á kjördag Bein útsending: HÍ og heimsmarkmiðin - Ofbeldi meðal barna og ungmenna á Íslandi Verulega dregið úr hættu á að hraun nái innviðum Settu bílslys á svið Segir „taugaveikluðum“ Framsóknarmönnum að róa sig Ríkar kröfur gerðar í nýrri auglýsingu um sendiherraembætti Þveraði Krýsuvíkurveg í mikilli hálku Fundu gríðarlegt magn fíkniefna í skrifstofuhúsnæði í Kópavogi Útlendingalögin séu misnotuð líkt og önnur kerfi velferðarríkisins Tíðindalítil nótt á gosstöðvunum en varað við gasmengun Svik og prettir reyndust falsfréttir Hraun streymir að langmestu frá Svartsengi Það sem oftast ógildir kjörseðilinn Vonast til að útkljá deilumál í fyrramálið FB stækkar og Framsókn aftur á gröfunni Skilningsleysi fyrrverandi fjármálaráðherra um að kenna Meðferðarheimili fyrsta skrefið að þjónustuþorpi fyrir börn Sjá meira