Stuðningsmenn Brexit sektaðir fyrir brot á kosningalögum Kjartan Kjartansson skrifar 11. maí 2018 12:39 Leave.EU sem barðist fyrir útgöngu Bretar úr ESB gerði ekki grein fyrir rúmum 70.000 pundum sem hópurinn eyddi í þjóðaratkvæðagreiðsluna. Vísir/AFP
Kjörnstjórn Bretlands hefur gert einum af stærstu baráttuhópunum fyrir útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu að greiða 70.000 pund í sekt fyrir að hafa eytt meira fé en leyfilegt var í kosningabaráttu sína og að hafa ekki gefið það upp. Sektin er jafnhá þeirri hæstu sem kjörstjórnin hefur nokkru sinni lagt á. Kjörstjórnin segir að mögulega þurfi lögregla að rannsaka hvort glæpur hafi verið framinn þegar framboðið gaf ekki upp upplýsingar um eyðslu sína fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna sem fór fram í júní árið 2016. Leave.EU-hópurinn segist ætla að kæra úrskurðinn og fullyrðir að brotin hafi verið minniháttar. Ekkert „stórt samsæri“ hafi átt sér stað í tengslum við Brexit-atkvæðagreiðsluna, að því er segir í frétt Reuters-fréttastofunnar. Arron Banks, stofnandi hópsins, brást við sektinni með uppnefnum um kjörstjórnina. Sagði hann kjörstjórnina sköpunarverk „Blairista-mýrarinnar“ sem væri full af „kyrrkvörturum“ [e. Remoaners] sem væru hallir undir ríkjandi valdakerfi. Virtist hann þar vísa í slagorð Donalds Trump Bandaríkjaforseta um að uppræta spillingu með því að „ræsa fram mýrina“ og hugmyndafræði Tonys Blair fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands. „Remoaner“ er algengt uppnefni stuðningsmanna Brexit um þá sem vilja að Bretar verði áfram aðilar að ESB.
Brexit Mest lesið „Þetta eru atburðir sem við höfum aldrei séð áður“ Innlent Svava Lydia komin í leitirnar Innlent Afsökunarbeiðni til Ólafar ekki í kortunum Innlent Segir afnám samsköttunar svik við kjósendur Innlent Kvikugangur frá Krýsuvík gæti náð inn í Heiðmörk Innlent Lýsa eftir Svövu Lydiu Innlent Saka Bandaríkin um kúgun og svara fyrir sig Erlent ÍR kveikti á skiltinu án leyfis Innlent Tímamót í opinberri heimsókn Höllu til Noregs Innlent Belgískum prins synjað um félagslegar bætur Erlent Fleiri fréttir Segjast hafa handsamað Kínverja sem börðust með Rússum Staðfestir veru úkraínskra hermanna í Belgorod Saka Bandaríkin um kúgun og svara fyrir sig Belgískum prins synjað um félagslegar bætur Mikilvægur fundur með Íran framundan Aflýstu blaðamannafundi skyndilega Eini eftirlifandinn lýsir pyntingum og barsmíðum ísraelskra hermanna Kanye stal Ku Klux Klan-myndinni úr Aftenposten Þrjú látin: Heyrðu öskur þegar hringt var í neyðarlínu Ísraelsher viðurkennir rangfærslur eftir birtingu myndefnis Þúsundir mótmæltu Trump á 1.200 mótmælum Vill tollalaus viðskipti við Evrópu „Þetta verður ekki auðvelt“ Handtekinn fyrir að fara á forboðna eyju „En það sem ég var aldrei, var nauðgari“ Tollahækkanir Trump taka gildi TikTok hólpið í bili Rak sex eftir fund með umdeildum samsæringi Russell Brand ákærður fyrir nauðganir og kynferðisbrot Sendi Dönum tóninn Saka Pútín um að draga lappirnar Rannsaka dráp á sjúkraliðum en neita að þeir hafi verið teknir af lífi Forseti Suður-Kóreu leystur frá embætti Rannsaka góðgerðarsamtök sem Harrý stofnaði Grunaður um að verða mæðgum að bana Tóku mið af viðskiptahalla en ekki tollum „Kokkurinn“ í Bandidos látinn Draga sig úr Alþjóðasakamáladómstólnum fyrir heimsókn Netanjahú Kvarta sáran yfir vopnakaupum Evrópu Flugmaðurinn sem týndi herþotu tjáir sig Sjá meira