Meistararnir ekki í vandræðum með Dýrlingana Arnar Geir Halldórsson skrifar 30. desember 2018 16:15 Meistararnir á sigurbraut á ný vísir/getty Englandsmeistarar Manchester City eru komnir aftur á beinu brautina í ensku úrvalsdeildinni eftir öruggan 1-3 sigur á Southampton á St.Mary´s leikvangnum í dag. David Silva opnaði markareikninginn strax á 10.mínútu með marki eftir undirbúning Bernardo Silva. Oleksandr Zinchenko gerði sig svo sekan um slæm mistök á 37.mínútu sem leiddi til jöfnunarmarks Pierre-Emile Højbjerg. City fór engu að síður með tveggja marka forystu í leikhléið þar sem þeir skoruðu tvö mörk í uppbótartíma fyrri hálfleiks. Hálfleikstölur 1-3 og reyndust það lokatölur leiksins. Southampton náði ekki að ógna meisturunum að ráði í síðari hálfleik og ekki vænkaðist hagur þeirra þegar Højbjerg fékk að líta beint rautt spjald fyrir glórulausa tæklingu á Fernandinho á 85.mínútu. Enski boltinn
Uppgjörið og viðtöl: ÍA - Víkingur 3-4 | Danijel Dejan Djuric tryggði Víkingi dramatískan sigur Íslenski boltinn
Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 2-1 | Draumaúrslitaleikurinn verður að veruleika Íslenski boltinn
Uppgjörið og viðtöl: ÍA - Víkingur 3-4 | Danijel Dejan Djuric tryggði Víkingi dramatískan sigur Íslenski boltinn
Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 2-1 | Draumaúrslitaleikurinn verður að veruleika Íslenski boltinn