Hugmyndir um borgara-arf í Bretlandi Gunnar Hrafn Jónsson skrifar 8. maí 2018 07:48 Kaupmáttur hefur dregist saman á milli kynslóða í fyrsta sinn Vísir/EPA
Allir breskir ríkisborgarar ættu að fá tæplega fjórtan hundruð þúsund króna eingreiðslu frá ríkinu þegar þeir verða tuttugu og fimm ára. Þetta er tillaga hugveitunnar Resolution Foundation, sem hefur lokið tveggja ára rannsóknarverkefni um landlæga fátækt sem erfist á milli kynslóða í Bretlandi. Stéttaskipting hefur lengi verið vandamál þar í landi en hugmyndin er að auðvelda börnum hinna efnaminni fasteignakaup og gera þeim þannig kleift að vinna sig út úr fátæktargildrunni. Kaupmáttur Breta á fertugsaldri hefur dregist saman miðað við stöðu foreldra þeirra á sama aldri og er þetta fyrsta kynslóð frá iðnbyltingunni sem býr við lakari kjör en sú á undan. Eingreiðslunni, sem myndi nema tíu þúsund pundum eða tæplega fjórtán hundruð þúsund krónum, myndu fylgja nokkur skilyrði. Aðeins yrði heimilt að nota peningana til fasteignakaupa, menntunar eða langtímasparnaðar. Hefur þetta verið kallaður borgara-arfur eða citizen‘s inheritance. Samkvæmt tillögum hugveitunnar, sem eru studdar af verkalýðsfélögum og hagsmunasamtökum atvinnurekenda, væri hægt að fjármagna slíkt með úrbótum á innheimtu fasteigna- og erfðaskatts.
Mest lesið „Óþekku börnin frá Grindavík“ vakti úlfúð Innlent Leiðtogi Hezbollah allur Erlent Drakk beint úr könnunni og svelgdist á Erlent Þyrlan kölluð út vegna fjórhjólaslyss Innlent Brotthvarf Katrínar hafði mikil áhrif Innlent „Ég hitti ungt fjölskyldufólk sem er gjörsamlega að kikna“ Innlent Uppgjör á hægri vængnum: „Ægishjálmur Sjálfstæðisflokksins“ ekki lengur veruleikinn Innlent Ótrúlegt myndband af gæsaflokki á flugi Innlent „Við vitum ekki neitt og höldum bara áfram að bíða“ Innlent Neyddist til að aflífa 125 krókódíla í útrýmingarhættu Erlent Fleiri fréttir Segir Ísrael í fullum rétti á að verja sig frá Hezbollah Minnst 66 látnir eftir flóð í Nepal Kallar eftir stuðningi allra múslima við Hezbollah Neyddist til að aflífa 125 krókódíla í útrýmingarhættu Öllum flugferðum til Beirút aflýst Drakk beint úr könnunni og svelgdist á Leiðtogi Hezbollah allur Loftárásir á meint vopnabúr Hezbollah í Beirút Orbán ber til baka ummæli ráðgjafa um uppgjöf fyrir Rússum Tugir látnir í fjórum ríkjum af völdum Helenar Borgarstjóri New York lýsir yfir sakleysi sínu Netanjahú sagðist mættur til að svara „lygum“ annarra þjóða Gerðu umfangsmikla atlögu að leiðtoga Hezbollah Selenskí fundaði með Trump Sjö hundruð liggja í valnum eftir vikuna Nýjasti kafbátur Kínverja sökk við bryggju Einn stærsti fellibylur síðustu hundrað ára veldur usla í Flórída Vísbending um að jörðin gæti lifað áfram sem niflheimur Ishiba verður næsti forsætisráðherra Japans Ítalía tekur aftur upp agaviðurlög frá tíma Mussolini Netanyahu hafnar tillögum um vopnahlé milli Ísrael og Hezbollah Vísar á bug tillögum um frið í skiptum fyrir úkraínskt land Ákærður fyrir mútuþægni og fjársvik Þingmaður sagði fólki frá Haítí að „drulla sér“ frá Bandaríkjunum Lögðu hald á síma borgarstjórans Sendir Patriot, svifsprengjur og skotfæri til Úkraínu Nákvæmasta kortið af Vetrarbrautinni til þessa Sýknaður eftir meira en 50 ár á dauðadeild Segir tortímingu eða uppgjöf Hezbollah einu lausnina Alríkisákærur gefnar út á hendur borgarstjóra New York Sjá meira