Sport

Heimsmeistarinn óvænt sleginn út

Bjarni Þórarinn Hallfreðsson skrifar
Cross mun ekki verja titilinn
Cross mun ekki verja titilinn vísir/getty
Ríkjandi heimsmeistari, Rob Cross var óvænt sleginn út af Luke Humphries á heimsmeistaramótinu í pílu í gær.



Cross er í öðru sæti heimslistans en Humphries er 88 sætum neðar.



Það leit út fyrir að Cross ætlaði að komast auðveldlega áfram í átta manna úrslitin en hann komst yfir 2-0.



Humphries kom hins vegar sterkur til baka og vann að lokum 4-2. Frábær endurkoma og Humphries er kominn í áta manna úrslitin þar sem hann mætir Michael Smith, en Smith er í tíunda sæti heimslistans.



Cross varð í fyrra heimsmeistari í fyrsta sinn, en þá varð hann fyrsti píluspilari sögunnar til þess að vinna heimsmeistaratitilinn í fyrstu tilraun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×