Björgvin Ingi hættir hjá Íslandsbanka Daníel Freyr Birkisson skrifar 18. janúar 2018 15:44 Björgvin Ingi sinnti starfi framkvæmdastjóra viðskipta og þróunar hjá Íslandsbankanum. Íslandsbanki
Björgvin Ingi Ólafsson, framkvæmdastjóri viðskipta og þróunar hjá Íslandsbanka, hefur sagt upp störfum. Staðfesti Björgvin tíðindin í samtali við Vísi en greindi upphaflega frá á Facebook-síðu sinni. Hann var ráðinn inn í framkvæmdastjórn bankans fyrir þremur árum síðan og segir í færslunni að vonast hafi verið eftir því að hann „yrði afl til breytinga“. Hann telur sig hafa staðið undir þeim væntingum. Skipulagi bankans hafi undanfarið verið gjörbreytt og hann nú tilbúinn til þess að takast á við þær áskoranir sem framtíðin ber í skauti sér. Nú sé hins vegar komið að tímamótum og kveðst hann spenntur fyrir komandi tímum. Hann vill þó ekki gefa upp hvað tekur við. „Ég skil stoltur við betri banka en ég kom inn í. Ég er glaður að hafa tekið þátt í þessu og hlakka til að takast á við nýja og spennandi hluti á frábæru ári 2018. Meira um það síðar,“ segir hann. Áður fyrr starfaði Björgvin Ingi sem fjármálastjóri Meniga og þar áður hjá ráðgjafafyrirtækinu McKinsey & Company. Þá hefur hann víðtæka reynslu af bankastarfsemi og var meðal annars starfsmaður Íslandsbanka frá 2000-2005. Björgvin er með MBA gráðu frá Kellogg School of Management og B.Sc. gráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands.
Vistaskipti Mest lesið Flytur fyrirtækin vegna löggjafar um trans börn Viðskipti erlent Áföstu tapparnir stóðust ekki gæðapróf Neytendur „Sérkennileg“ hækkun íbúðaverðs á tímum hárra vaxta Viðskipti innlent Leiguverð heldur áfram að hækka Viðskipti innlent Taylor Swift talin valda verðbólgu í Bretlandi Viðskipti erlent „Það er verið að ríkisvæða húsnæðismarkaðinn“ Viðskipti innlent Umferðarofsi stofnar vegfarendum í hættu Samstarf Leggja upp laupana í Lundúnum Viðskipti innlent Níu holu golfvöllur á gamalli landnámsjörð Samstarf Fasteignakaup fjárfesta vísbending um að fasteignaverð haldi áfram að hækka Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Sérkennileg“ hækkun íbúðaverðs á tímum hárra vaxta Leiguverð heldur áfram að hækka „Það er verið að ríkisvæða húsnæðismarkaðinn“ Leggja upp laupana í Lundúnum Annað tilboð borist í Skagann 3X Fasteignakaup fjárfesta vísbending um að fasteignaverð haldi áfram að hækka Skúli í Subway reisir glæsihótel við Jökulsárlón Búið að bjóða í Skagann 3X Brutu samkeppnislög með ótímabærri markaðssetningu Harpa vill létta lund veðurbugaðra höfuðborgarbúa Atlanta með 600 manna flugútgerð í Sádí-Arabíu Berglind gengin í eigendahópinn Staðan ekki jafnsvört og sumir vilji meina Bjartmar ráðinn aðstoðarframkvæmdastjóri Íbúar Grafarholts geta tekið til matar síns á ný „Við erum bara að reyna að lifa af“ „Komin upp í þak“ í verðlagningu Nýir eigendur taka við Melabúðinni Festi festi kaup á Lyfju Spá aukinni verðbólgu HS Orka tryggir sér fjörutíu milljarða króna Mikil fjölgun tengifarþega en mun færri ferðast til Íslands Fleiri farþegar en minni sætanýting Mikill áhugi á þrotabúi Skagans 3X Formaður atvinnuveganefndar á hlut í félaginu sem KS keypti Landsbankinn til ráðgjafar vegna sölu Íslandsbanka KS hafi fest kaup á Kjarnafæði Norðlenska Sáraroðið frá Ísafirði notað til bjargar brenndum börnum í Afganistan Brúneggjamálið tekið fyrir í Hæstarétti Úr boltanum í tryggingarnar Sjá meira