Tveir handteknir eftir líkamsárás fyrir utan skemmtistað í Hafnarfirði Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 1. júlí 2018 07:15 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í nógu að snúast í nótt. Vísir/Daníel
Rétt eftir klukkan þrjú í nótt barst lögreglu tilkynning um slagsmál fyrir utan skemmtistað í Hafnarfirði. Tveir einstaklingar voru handteknir á staðnum grunaðir um líkamsárás. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu eru þeir nú vistaðir í fangaklefa vegna rannsóknar málsins. Lögreglan hafði oft afskipti af ökumönnum í nótt grunuðum um akstur undir áhrifum áfengis- eða fíkniefna en einn þeirra var á bifhjóli og er einnig grunaður um vörslu fíkniefna. Sex ökumenn sem lögregla hafði afskipti af í nótt voru próflausir, einn hafði aldrei tekið ökupróf en hinir höfðu áður verið sviptir ökuréttindum. Tveir ökumannanna sem lögreglan stöðvaði vegna slíkra mála reyndust enn aka um á negldum dekkjum og lögreglan tók skráningarmerkin af einni bifreið sem ekki hafði farið í gegnum skoðun. Ökumaður var stöðvaður í Grafarvogi skömmu fyrir miðnætti grunaður um að hafa ekið á 122 km/klst þar sem hámarkshraðinn er 60 km/klst. Um klukkan tvö í nótt var bifreið stöðvuð í Mosfellsbæ þar sem ökumaður er einnig grunaður um að hafa ekið á meira en tvöföldum hámarkshraða. Hann var mældur á 109 km/klst þar sem hámarkshraðinn er 50 km/klst og var sviptur ökuréttindum til bráðabirgða á staðnum.
Lögreglumál Mest lesið Erfiður tími þegar dóttirin kom út sem trans Innlent Þau kvöddu á árinu 2024 Erlent Farþegaflugvél hrapaði í Kasakstan Erlent Aðeins ein flugvél lent í Keflavík í dag Innlent Gott að geta sagt „þú ert hjartanlega velkominn“ Innlent Fagna jólunum í Betlehem í skugga stríðs Innlent Á vaktinni við lokunarpósta alla jólanótt Innlent Tveir vörðu jólanótt í fangaklefa Innlent Appelsínugular viðvaranir og vegir víða lokaðir Veður Þak fauk nánast af hlöðu Innlent Fleiri fréttir Standa vaktina við lokunarpósta á jóladag Flugferðir hafnar að nýju í Keflavík Þak fauk nánast af hlöðu Fagna jólunum í Betlehem í skugga stríðs Hellisheiði og Þrengsli opna ekki fyrr en á morgun Aðeins ein flugvél lent í Keflavík í dag Útköll víða vegna óveðurs Erfiður tími þegar dóttirin kom út sem trans Gott að geta sagt „þú ert hjartanlega velkominn“ Appelsínugular viðvaranir og jólaboð hjá Hjálpræðishernum Á vaktinni við lokunarpósta alla jólanótt Tveir vörðu jólanótt í fangaklefa Gleðileg jól, kæru lesendur Vegir víða um land gætu lokast með litlum fyrirvara Varað við ferðalögum víða um land Margir á síðasta snúningi með jólapakkana Í sumum tilfellum eina hátíðlega stund dagsins Men Tolla komið í leitirnar: „Sannkölluð jólasaga“ Vonskuveður og þau sem eru á síðasta snúningi Fjúgandi hálka í kirkjugörðum Reykjavíkur Stolið hálsmen Tolla dúkkaði upp tuttugu árum síðar Nóg að gera hjá slökkviliðinu í nótt Mette óskaði Kristrúnu til hamingju Aðfangadagur: Hvar er opið og hve lengi? „Skiptir sannleikurinn engu máli?“ Fjölmenni gekk fyrir frið í miðborginni Rútur skildar eftir á Holtavörðuheiði og leiðinni lokað Vísnabók gefin til nýrra Hvergerðinga frá Hveragerðisbæ Vandræðamál sem ríkisstjórnin fær í arf Komust með flugvélinni á ögurstundu Sjá meira