Ung kona skotin til bana af hermönnum á Gasa

Herinn sagði að þúsundir „óeirðarseggja“ hafa komið saman á fimm stöðum á landamærum Gasa og þar hafi þau brennt dekk og reynt að valda skemmdum á eignum Ísrael. Þá segir herinn að skotið hafi verið á hermenn og að einn Palestínumaður hafi farið yfir landamærin og komið fyrir sprengju.
Frá því í lok mars hafa umfangsmikil mótmæli átt sér stað á Gasa og vilja mótmælendur, samkvæmt AFP fréttaveitunni, að Palestínumönnum sem reknir voru af heimilum sínum árið 1948 við stofnun Ísrael, verði gert kleift að snúa aftur til síns heima. Heimili þeirra eru þó nú inn í Ísrael.
Mótmælin náðu hámarki þann 14. maí þegar ísraelskir hermenn skutu 61 til bana. Síðan þá hafa mótmælin verið minni.
Tengdar fréttir

Paragvæ fylgir fordæmi Bandaríkjanna
Opnun sendiráðs Bandaríkjanna í Jerúsalem hefur opnað fyrir aðrar þjóðir til að gera slíkt hið sama. Paragvæ fetaði í fótspor Bandaríkjanna með opnun sendiráðs síns í dag. Fleiri þjóðir íhuga nú flutning,

Rouhani hvetur múslimsk ríki til að endurskoða viðskiptatengsl við Bandaríkin
Hassan Rouhani, forseti Íran, hvetur múslimsk ríki til þess að endurskoða viðskiptasambandið við Bandaríkin.

Viðkvæmt vopnahlé tekur gildi á Gaza ströndinni
Vopnahlé tók gildi á milli Ísraels og palestínskra skæruliða á Gaza ströndinni í morgun. Það mun vera afrakstur leynilegra viðræðna Hamas samtakanna við ísraelska stjórnarerindreka.

Sprengjum rignir yfir Ísrael og Gaza
Ráðherra njósnamála í Ísrael, sagði í úrvarpsviðtali í dag að ekki hefðu verið jafn miklar líkur á stríði síðan árið 2014.

Viðbrögð Ísraela við mótmælum sögð í engu samræmi við tilefnið
Mannréttindastjóri Sameinuðu þjóðanna segir dráp Ísraela á palestínskum mótmælendum mögulega geta talist alvarlegt brot á Genfarsáttmálanum.

Palestínumenn kæra Ísrael til Alþjóðaglæpadómstólsins í Haag
Yfirvöld í Palestínu hafa kært Ísraelsríki til Alþjóðaglæpadómstólsins í Haag fyrir meinta stríðsglæpi Ísraela í Palestínu. Ísraelar vísa ásökunum um stríðsglæpi aftur á móti á bug.