Sport

Brown klár í bátana eftir æfingar með Ochocinco

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Brown í leiknum gegn Patriots.
Brown í leiknum gegn Patriots. vísir/getty
Besti útherji NFL-deildarinnar, Antonio Brown, mun væntanlega spila með Pittsburgh Steelers gegn Jacksonville Jaguars í úrslitakeppninni um næstu helgi.

Brown hefur ekkert spilað síðan hann meiddist í leiknum gegn New England Patriots. Síðan þá eru liðnar þrjár vikur.

Brown skellti sér meðal annars til Flórída á dögunum til þess að æfa með fyrrverandi útherjanum Chad Johnson sem einnig er þekktur undir nafninu Ochocinco. Frábær leikmaður á sínum tíma.

Þeir unnu saman í fótavinnunni og var ekki annað að sjá en að Brown væri búinn að ná sér góðum. Brown var einn besti leikmaður deildarinnar í vetur með 101 gripinn bolta og yfir 1.500 jarda.

Steelers þarf á honum að halda gegn bestu vörn deildarinnar um næstu helgi.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×