Rauð jól í Liverpool Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 2. janúar 2018 06:00 Ragnar Klavan skorar sigurmark Liverpool. vísir/getty
Jóhann Berg Guðmundsson var grátlega nærri því að tryggja Burnley stig gegn Liverpool á Turf Moor með sínu fyrsta marki fyrir félagið í rúmt ár. Jóhann Berg jafnaði metin í 1-1 á 87. mínútu þegar hann kastaði sér fram og skallaði boltann fram hjá Simon Mignolet í marki Liverpool. Jóhann Berg hefur ekki verið þekktur fyrir skallamörk í gegnum tíðina en afgreiddi færið sitt gegn Liverpool vel. Mark íslenska landsliðsmannsins virtist ætla að tryggja Burnley stig en miðverðir Liverpool voru á öðru máli. Þegar fjórar mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma fengu gestirnir aukaspyrnu á vallarhelmingi heimamanna. Alex Oxlade-Chamberlain lyfti boltanum inn á teiginn, Dejan Lovren skallaði hann á fjærstöngina þar sem hinn miðvörðurinn, Ragnar Klavan, skoraði af stuttu færi. Fyrsta mark hans fyrir Liverpool og fyrsta markið sem Eistlendingur skorar í ensku úrvalsdeildinni. Liverpool-menn geta verið sáttir með uppskeru jólatarnarinnar. Rauði herinn hefur unnið fjóra af síðustu fimm leikjum sínum og skorað 16 mörk í þeim. Mohamed Salah og Philippe Coutinho fóru mikinn í jólamánuðinum en þeir voru ekki með gegn Burnley í gær. Leikurinn á Turf Moor var sá sísti hjá Liverpool í jólatörninni en sigurinn var þeim mun mikilvægari. „Ég er mjög ánægður. Þetta var ekki frábær fótbolti en viðhorfið var frábært. Ég vildi sjá það frá mínum mönnum,“ sagði kátur Jürgen Klopp eftir leikinn í gær. Eftir 4-1 skellinn gegn Tottenham 22. október hefur Liverpool leikið 16 leiki í röð án þess að tapa. Ellefu þessara leikja hafa unnist og fimm endað með jafntefli. Sóknarleikurinn er lítið vandamál hjá Liverpool. Liðið skoraði sjö mörk gegn Spartak Moskvu í Meistaradeildinni, fimm gegn Swansea City og Brighton, fjögur gegn Bournemouth og West Ham. Salah hefur farið hamförum og Brassarnir Coutinho og Roberto Firmino verið duglegir að skora og leggja upp. Varnarleikurinn hefur líka lagast, ef frá er talinn leikurinn gegn Arsenal þar sem Liverpool fékk á sig þrjú mörk á fimm mínútum. Í síðustu 13 deildarleikjum hefur Liverpool aðeins fengið á sig níu mörk og haldið sex sinnum hreinu. Stuðningsmenn Liverpool vonast líka til þess að vörnin verði enn sterkari þegar Virgil van Dijk, dýrasti varnarmaður allra tíma, kemur inn í liðið. Hollendingurinn er orðinn löglegur með Rauða hernum. Liverpool er í 4. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 44 stig, sex stigum á undan Arsenal sem er í 5. sætinu. Strákarnir hans Klopps voru einnig í 4. sætinu eftir 22 umferðir á síðasta tímabili en með stigi meira. Janúar var hræðilegur hjá Liverpool í fyrra; liðið fékk aðeins þrjú stig í fjórum deildarleikjum, var slegið út úr ensku bikarkeppninni af B-deildarliði Wolves og tapaði báðum leikjunum gegn Southampton í undanúrslitum deildabikarsins. Fjarvera Sadios Mané setti stórt strik í reikning Liverpool í janúar í fyrra. Nú er hins vegar engin Afríkukeppni að trufla Liverpool og þá virðist leikmannahópurinn vera breiðari og sterkari en í fyrra. Liverpool mætir Everton í 3. umferð ensku bikarkeppninnar um næstu helgi. Helgina þar á eftir tekur Rauði herinn svo á móti toppliði Manchester City. Tveir risaleikir fyrir Liverpool en miðað við frammistöðuna að undanförnu hefur liðið lítið að óttast.Úr leik Crystal Palace og Manchester City.vísir/gettyStóru málin eftir helgina í enska boltanumStærstu úrslitin Crystal Palace stöðvaði 18 leikja sigurgöngu Manchester City er liðin gerðu markalaust jafntefli á gamlársdag. Palace fékk gullið tækifæri til að vinna leikinn í uppbótartíma en Ederson varði vítaspyrnu Luka Milivojevic. Palace hefur aðeins tapað einum af síðustu 10 deildarleikjum sínum.Hvað kom á óvart? Swansea vann afar mikilvægan sigur á Watford, 1-2, í fyrsta leiknum undir stjórn Carlos Carvalhal. Útlitið var ekki gott fyrir Svanina sem voru marki undir þegar fjórar mínútur voru til leiksloka. En mörk frá Jordan Ayew og Luciano Narsingh tryggðu Swansea stigin þrjú.Mestu vonbrigðin Mark Hughes hvíldi marga lykilmenn gegn Chelsea og Stoke fékk á baukinn, 5-0. Hann sagði að þessi ákvörðun myndi borga sig ef liðið myndi vinna Newcastle. Það fór ekki svo. Newcastle vann 0-1 sigur. Stoke hefur gengið illa á tímabilinu og Hughes situr í sjóðheitu sæti.
Enski boltinn Mest lesið Segir Danann versta samherjann: „Hann lamdi menn í spað“ Fótbolti Staðfestir brottför Danijels sem spilar ekki á fimmtudag Íslenski boltinn Guðlaugur um Rooney: „Hann missti traustið gagnvart mér“ Enski boltinn Arnór laus úr prísund Blackburn Enski boltinn Segir endurkomu samherja Hákonar bíómyndaefni Fótbolti Gleymdi að gefa konunni gjöf á Valentínusardaginn Enski boltinn Hélt upp á HM-gullið með nýrri klippingu en konan var brjáluð Sport Aðstoðarþjálfari Dallas Mavericks handtekinn Körfubolti 24 ára írskur afreksknapi lést Sport Þrenn slagsmál á fyrstu níu sekúndunum Sport Fleiri fréttir Sektaðir fyrir að öskra á Michael Oliver Arnór laus úr prísund Blackburn Biður til Guðs að Arsenal taki titilinn Pep varð fyrst hræddur um Haaland en er nú vongóður Gleymdi að gefa konunni gjöf á Valentínusardaginn Guðlaugur um Rooney: „Hann missti traustið gagnvart mér“ Maddison var að sussa á Roy Keane Ekki unnið heimaleik í 105 daga þangað til Man United kom í heimsókn Enginn lagt upp fleiri mörk en Ederson Hetjan Maddison: Er hérna til að skapa færi og skora mörk Man City fór létt með Liverpool „Staða okkar í töflunni veldur mér áhyggjum“ Dagný og Hlín komu við sögu í sigrum West Ham og Leicester Maddison tryggði langþráðan heimasigur Diaz kom Liverpool í toppmál Armstrong til Man United frá PSG Leeds mun banna stuðningsfólk sem syngur and-palestínska söngva Nistelrooy og Keown grófu stríðsöxina og slógu á létta strengi „Mundum hverjir við erum“ Gott gengi Everton undir stjórn Moyes heldur áfram Amad líklega frá út tímabilið Marmoush með þrennu í sigri Man City Merino sá um að setja pressu á Liverpool Brighton skellti Chelsea nýbúnir að slá þá út úr bikarnum David Moyes finnur til með Arne Slot Orðinn mjög þreyttur á flakkinu Ekki í sömu sporum og Ange: „Ég er hjá stærra félagi með meiri pressu“ Slot fullur eftirsjár og gæti sloppið við bann Nýja tæknin notuð alls staðar nema hjá liði Stefáns Teits Sjáðu síðasta borgarslaginn á Goodison með augum stuðningsmannanna Sjá meira