Southampton og Tottenham skildu jöfn Arnar Geir Halldórsson skrifar 21. janúar 2018 17:45 Hart barist í leiknum í dag vísir/getty Southampton er enn í leit að sínum fyrsta sigri síðan í nóvember eftir 1-1 jafntefli gegn Tottenham á St.Mary´s leikvangnum í dag. Leikurinn byrjaði vel fyrir Southampton því Davinson Sanchez varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark strax á 15.mínútu. Tottenham, sem lék án Hugo Lloris og Christian Eriksen í dag, var ekki lengi að svara því markahrókurinn Harry Kane jafnaði metin á 18.mínútu. Bæði lið fengu ágætis færi til að skora fleiri mörk en allt kom fyrir ekki og 1-1 jafntefli niðurstaðan. Southampton er því enn í fallsæti, nú stigi frá öruggu sæti en Tottenham situr sem fastast í fimmta sætinu með 45 stig. Enski boltinn