Martial tryggði United sigur á Burnley Dagur Lárusson skrifar 20. janúar 2018 17:00 Martial var hetjan í dag. Vísir/Getty Anthony Martial tryggði Manchester United sigurinn gegn Jóhanni Berg og félögum í Burnley. Það var jafnræði með liðunum framan af leik en hvorugu liðinu tókst að skapa almennilega marktækifæri í fyrri hálfleiknum og því var markalaust í hálfleik. Í seinni hálfleiknum var ennþá jafnræði en bæði lið fóru þó að sækja meir. Burnley fór að opna sig meira og það gerði það að verkum að United fékk nokkrar skyndisóknir. Anthony Martial nýtti sér eina slíka eftir undirbúning Lukaku og skoraði eina mark leiksins. Eftir leikinn er United komið með 53 stig og situr í 2.sæti deildarinnar á meðan Burnley situr í 8.sæti með 34 stig. Enski boltinn