Arsenal rúllaði yfir Palace á 20 mínútum | Vardy og Mahrez sáu um Watford Arnar Geir Halldórsson skrifar 20. janúar 2018 16:45 Monreal skoraði eitt og lagði upp tvö áður en hann fór af velli á 34.mínútu Vísir/Getty
Sex leikjum er nýlokið í ensku úrvalsdeildinni þar sem mikið var um dýrðir. Leikmenn Arsenal létu neikvæðnisraddir í kringum félagið undanfarna daga ekki hafa slæm áhrif á sig. Þvert á móti mættu þeir til leiks í sóknarhug og slógu Crystal Palace algjörlega út af laginu á fyrstu 20 mínútum leiksins. Alexandre Lacazette kom Arsenal í 4-0 á 22.mínútu leiksins og hélst staðan þannig þar til á 77.mínútu þegar Luka Milivojevic klóraði í bakkann fyrir gestina. Öruggur heimasigur engu að síður staðreynd og yfirburðir Arsenal í þessum Lundúnarslag algjörir. Joe Allen og Mame Biram Diouf tryggðu Stoke 2-0 heimasigur á Huddersfield í fyrsta leik Stoke undir stjórn Paul Lambert sem tók við stjórnartaumunum á dögunum. Jamie Vardy og Riyad Mahrez sá um markaskorun Leicester þegar liðið vann 2-0 sigur á Watford á King Power leikvangnum. Mark Vardy úr vítaspyrnu sem hann fiskaði sjálfur. Þá skildu West Ham og Bournemouth jöfn á Ólympíuleikvangnum í Lundúnum, 1-1, þar sem mörk Ryan Fraser og Javier Hernandez komu með mínútu millibili í síðari hálfleik.
Enski boltinn Tengdar fréttir Gylfi og félagar gerðu jafntefli Oumar Niasse tryggði Everton stig gegn WBA í leik liðanna í dag en eftir leikinn situr Everton í 9.sæti deildarinnar. 20. janúar 2018 17:00 Martial tryggði United sigur á Burnley Anthony Martial tryggði Manchester United sigurinn gegn Jóhanni Berg og félögum í Burnley. 20. janúar 2018 17:00
Gylfi og félagar gerðu jafntefli Oumar Niasse tryggði Everton stig gegn WBA í leik liðanna í dag en eftir leikinn situr Everton í 9.sæti deildarinnar. 20. janúar 2018 17:00
Martial tryggði United sigur á Burnley Anthony Martial tryggði Manchester United sigurinn gegn Jóhanni Berg og félögum í Burnley. 20. janúar 2018 17:00
Uppgjörið og viðtöl: ÍA - Víkingur 3-4 | Danijel Dejan Djuric tryggði Víkingi dramatískan sigur Íslenski boltinn
Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 2-1 | Draumaúrslitaleikurinn verður að veruleika Íslenski boltinn
Uppgjörið og viðtöl: ÍA - Víkingur 3-4 | Danijel Dejan Djuric tryggði Víkingi dramatískan sigur Íslenski boltinn
Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 2-1 | Draumaúrslitaleikurinn verður að veruleika Íslenski boltinn