Troy Deeney hetja Watford Dagur Lárusson skrifar 24. febrúar 2018 19:30 Troy Deeney fagnar með liðsfélögunum. vísir/getty Troy Deeny skoraði sigurmark Watford gegn Gylfa Þór og félögum í Everton í síðasta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Jafnræði var með liðunum allan leikinn en þau skiptust á að sækja en hvorugu liðinu tókst að skapa góð marktækifæri í fyrri hálfleiknum. Í seinni hálfleiknum gerði Javi Gracia, stjóri Watford, góðar skiptingar sem áttu eftir að skila sér en hann setti m.a. Stefano Okaka inná sem breytti gangi mála. Eftir skiptingar Gracia var Watford með yfirhöndina í leiknum og skoraði Troy Deeney á 79. mínútu og reyndist það vera eina mark leiksins. Eftir leikinn er Watford komið með 33 stig í 10. sæti deildarinnar á meðan Everton er í 9. sæti með 34 stig. Enski boltinn