Innlent

Elstu tré Hafnarfjarðar felld til að bjarga Siggubæ

Garðar Örn Úlfarsson skrifar
Lerkitrjánum við suðurgafl Siggubæjar mun hafa verið plantað árið 1926.
Lerkitrjánum við suðurgafl Siggubæjar mun hafa verið plantað árið 1926. Hafnarfjarðarbær
„Þetta er eiginlega spurning um hvort það sé hægt að viðhalda húsinu eða hvort trén eigi að fá að vera,“ segir Steinar Björgvinsson, framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Hafnarfjarðar, um tvö af elstu trjám bæjarins sem til stendur að fella.

Um er að ræða tvö lerkitré sem standa við suðurgafl Siggubæjar, eins elsta húss Hafnarfjarðar, sem heyrir undir byggðasafn bæjarins. Í greinargerð garðyrkjustjóra segir að lerkið hafi „í áratugi verið hægt og bítandi að berja húsið og þá þakkantinn“ þannig að verulega sjái á. „Til að hægt sé að lagfæra bæinn neyðumst við til að fjarlægja trén.“

Upphaflega vildi Steinar að trjánum yrði hlíft. „Er algerlega á móti því að fella þau,“ sagði hann í tölvupósti er bæjarskrifstofurnar inntu hann álits á málinu. Benti hann á að trén væru með þeim elstu sem vitað sé um í Hafnarfirði. Á lóðinni sé jafnframt heggur sem sé elsta tré bæjarins svo vitað sé. Heggurinn sé væntanlega rótarskot frá tré sem plantað hafi verið árið 1913. „Það ætti í raun að friða þessi tré!“ lagði Steinar áherslu á.

Nú segist Steinar hafa kynnt sér málið nánar. „Ég sagði að mér fyndist sögunnar vegna að það ætti að friða þau en nú er ég búinn að skoða aðstæður betur,“ segir Steinar og bendir á að lerkitrén hafi á sínum tíma verið sett alveg upp við suðurgafl hússins, sennilega til að tryggja þeim skjól. Að auki sé klöpp undir þeim og því séu þau fremur lítil.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×